 |
Í heimsreisu sérðu óendanlega mörg falleg sólsetur.Hin fullkomna ferðHeimsreisa - hljómar það brjálað? Fyrir flesta byrjar ævintýrið sem draumórar eða létt spjall, en margir furða sig á hversu ódýrt það er að ferðast um heiminn og upplifa hvítar sandstrendur, þétta frumskóga, töfrandi eyðimörk og fjallstinda, sem ná svo langt sem augað eygir.
Er maður ungur eða námsmaður - eða bara frjáls ferða sinna - þá er auðvelt að rífa hálft ár eða heilt út úr dagatalinu og kasta sig í upplifanir sem seint gleymast á lífsleiðinni. Það er þó mikilvægt að setja sér nokkur auðveld markmið fyrir svona stóra ferð, þannig að maður fái það besta fyrir sparipeningana sína. Og peninga þarf. Ekki heilan bóndabæ heldur upphæð sem samsvarar lengd ferðarinnar og það sem maður vill upplifa á leiðinni. Er maður til dæmis yngri en 26 eða námsmaður yngri en 33 ára og ætlar að fara í þessa klassísku, það er að segja til Asíu, Ástralíu, Nýja Sjálands og Bandaríkjanna, svo skal maður reikna með x evrum fyrir flugmiðana - en svo eru þeir sveigjanlegir svo hægt er að breyta þeim á meðan á ferð stendur. Fyrir aðra aldurshópa kosta flugmiðarnir aðeins meira.
Á níunda og tíunda áratugnum var mjög vinsælt að fara á Interrail í gegnum Evrópu. Á þeim tíma spurði maður sjálfan sig: "Ætti ég að skella mér til Ítalíu eða til Spánar eða Portúgal?" Í dag er stóra spurningin: "Ætti ég að skella mér til Asíu, Afríku eða Suður-Ameríku?" Hvert sem maður vill fara og hvað maður vill upplifa fer eftir hverjum og einum, en ekta bakpokaferðalag um heiminn á sér nánast alltaf stað í gegnum Ástralíu eða Nýja Sjáland. Það er eitthvað kyngimagnað við þessi lönd sem eru hinum megin á hnettinum - bæði vegna fjarlægðinnar en einnig vegna náttúrunnar sem er svo stórbrotin og gagnstæð því sem við eigum við að venjast. Hver vill ekki standa á tindi Ayers Rock, kafa við Grand Barrier Reef eða upplifa stórkostlegu náttúru Nýja Sjálands - sem við þekkjum svo vel frá Hringadróttinssögu?
Byrjar maður ferðina í Suð-austur Asíu þá er upplagt að velja Bangkok sem fyrsta áfangastað og þaðan fara í norður til Chiang Mai, þar sem í boði er að fara í gönguferð í frumskógi eða flúðasiglingu á fleka og þannig hitta ættbálka. Það er líka hægt að velja ævintýraferð með öðrum bakpokaferðalöngum og staðbundnum leiðsögumanni. Til dæmis er ferðin frá Tælandi til Víetnam í gegnum Kambódíu afar vinsæl. Ef maður hefur aldrei ferðast á eigin vegum í framandi landi getur verið góð hugmynd að fara í ævintýraferð því þannig er hægt að fá góða yfirsýn yfir hvernig maður ber sig að, og á sama tíma upplifa geggjaða hluti með öðrum ferðamönnum - því hvað er skemmtilegt við að sjá heiminn ef það er ekki hægt að deila upplifuninni með öðrum?
Er það Afríka sem heillar, skaltu ekki missa af alvöru safaríferð. Bestu ferðirnar eru í Kenía, Tansaníu eða Suður-Afríku, en önnur lönd henta einnig vel til slíkra ferða - því Afríka er öll rík af dýralíf og landflæmi. Að ferðast á eigin vegum í Afríku getur verið prófraun, en ef maður er þolinmóður ætti það að ganga fínt. Að öðrum kosti er hægt að fara í svokallaða overland-ferð og keyra í gegnum mörg lönd í yfirbyggðum trukk með öðrum ævintýragjörnum. Besta overland-ferðin frá Nairobi í Kenía til Cape Town í Suður-Afríku tekur heila 43 daga.
Brasilía er þekkt fyrir samba og hina frábæru kjötkveðjuhátíð í Ríó, en ekki gleyma að Brasilía er fimmta stærsta land heims og býður uppá gríðarstór svæði með þéttum regnskógum. Hvað segirðu um fljótasiglingu upp Amazon-fljót og þaðan áfram til Ecuador, Perú eða Bólivíu með öllum sínum háu fjöllum og ótal möguleikum? Ekki síður er Inkastígurinn í Perú vinsæl og heillandi gönguslóð.
Að lokum er það Norður-Ameríka, sem alltaf er jafn vinsæl meðal bakpokaferðalanga. Sérstaklega vesturströndin, sem býður upp á margar spennandi ævintýraferðir í Los Angeles, San Francisco, Las Vegas og Seattle. Bandaríkin og Kanada er best að skoða í bílaleigubíl eða hjólhýsi. Á þann hátt er hægt að stjórna ferðinni sjálfur og það sem maður vill skoða. Hefur maður góðan tíma og fjárráð, er sniðugt að kaupa notaðan bíl og krúsa á milli stranda.
Möguleikarnir eru margir ef þú ert á leið í heimsreisu, og mælum við með að þú talir við ferðaráðgjafa okkar sem geta útskýrt betur fyrir þér hvernig sveigjanlegu miðarnir virka og gefið þér upplýsingar um bestu ævintýraferðirnar, gistingu á hótelum og farfuglaheimilum, rútumiða og ferðatryggingu. Góða ferð!
Lasse Grunstrup
|
 |