![]() |
Hjálp - Breyta miða » Hjálp |
![]() |
|
![]()
Um leið og þú hefur klárað bókunina og greiðsluna ættirðu að sjá á tölvuskjánum bókunarstaðfestingu auk bókunarnúmers. Innan skamms tíma ættirðu að móttaka tölvupóst með upplýsingum um bókun og ferðaáætlun. Innan fárra virkra daga verður svo rafrænn miði sendur til þín beint á netfangið þitt. NEI – verðið sem þú sérð á leitarniðurstöðu er það sem þú borgar! Við tökum bókunargjald í þeim tilfellum sem bókað er hjá ferðaráðgjöfum okkar. KILROY travels tekur við greiðslu með alþjóðlegum greiðslukortum. Ef þú vilt greiða með bankayfirfærslu þarftu að bóka hjá ferðaráðgjafa. Heildargreiðslu er krafist áður en miði getur verið gefinn út. Allir miðar eru rafrænir sem þýðir að þú munt ekki fá pappírsmiða, heldur bókunarnúmer. Þú ættir þó ávallt að prenta út rafræna miðann þinn og taka með þér útá flugvöll. Taktu eftir – staðfestingin á bókuninni sem er send um leið og þú ert búin/n að bóka á netinu er ekki rafræni miðinn þinn. KILROY travels býr að meira en 60 ára reynslu í að sérsníða ferðir – sérstaklega fyrir ungt fólk og námsmenn. Útfrá draumum þínum getum við sett saman ferð sem samanstendur af bæði flugi, ævintýraferðum, bílaleigubíl, húsbíl, hótelum og farfuglaheimilum. Ef þú ferð í langa ferð eða heimsreisu geturðu ekki fundið betri sérfræðinga en hjá KILROY travels. Settu þig í samband við ferðaráðgjafa okkar ef þig vantar innblástur eða verðtilboð. Ef þú ert að fara í langt ferðalag, eða vilt heimsækja marga áfangastaði í sömu ferð, getur sérfræðiþekking ferðaráðgjafa okkar sparað þér umtalsverðan kostnað. Þeir finna ódýrustu og bestu leiðirnar og setja upp hagstæðustu ferðaáætlunina. Svo þótt lágt þjónustugjald er til staðar, eru góðar líkur á að þú sparir þér bæði tíma og fé. Á mörgum stöðum á síðunni eru form sem þú þarft einfaldlega að fylla út og senda. Þú getur einnig fundið upplýsingar undir “Hafa samband” á vefsíðunni. Almennum miðum (merktir með svörtu þegar bókað er á netinu) er yfirleitt ekki hægt að breyta. KILROY tickets eru sérstaklega hannaðir fyrir ungt fólk og námsmenn. Það fer eftir fáanleika fargjalds hvort hægt sé að breyta ferðadagsetningu, bæði fyrir og meðan á ferð stendur. Yfirleitt geturðu ekki afpantað miða og fengið endurgreitt, en ef þú ert með KILROY ticket geturðu fengið hluta fargjalds endurgreitt. Hafðu samband við KILROY fyrir nánari upplýsingar. Aðeins ungt fólk og námsmenn yngri en 26 ára og námsmenn í fullu námi undir sérstökum aldri (yfirleitt 33 ára) geta ferðast á KILROY miða. Þetta er vegna þess að flugfélögin vilja takmarka aðgang að sérstaklega ódýrum og sveigjanlegum fargjöldum fyrir ungt fólk og námsmenn. Að bjóða öllum uppá þessi fargjöld myndi stofna heildarinnkomu flugfélaganna í hættu. Flugfélögin krefjast þess að ferðamaður sé með gilt ISIC eða IYTC kort til að geta keypt KILROY ticket. ISIC stendur fyrir International Student Identity Card og er fáanlegt öllum námsmönnum í fullu námi. IYTC stendur fyrir International Youth Travel Card og er fáanlegt öllum yngri en 26 ára. Þú getur keypt ISIC eða IYTC á vefsíðu KILROY. |
|||
![]() |
![]() |
||
![]() |
![]() |
|
![]() |
![]() |
|

























