![]() |
![]() |
![]() |
||||||||||
|
||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||
|
|||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||
![]() |
![]() |
|
![]() |
![]() |
|
![]() |
Hugarflug » Karíbahaf » Kúba |
![]() |
||||||||||||||||||
![]()
Áhugaverðir staðir
Viñales býður uppá frábær klifursvæði, meðal þeirra bestu í heimi. Einnig er tilvalið að fara í hjólreiðatúra, hestaferðir og jafnvel heimsækja tóbaksræktun á svæðinu. Trinidad er falleg borg og er talin ein af best varðveittu borgum í Karabíska hafinu, allt frá nýlendutímanum þegar Spánverjar réðu ríkjum. Byggingarlistin í Trinidad er ótúlega glæsileg og borgin í heild er táknræn fyrir Kúbu, pastellituð hús, flottar kirkjur og hellusteinslagðar götur.
Á leið þinni til Trinidad skaltu koma við í Santa Clara til að skoða minnisvarðann um Che Guevara.
Hvítu strendurnar við Varadero freista einnig ferðamenn og þótt Varadero er mikil ferðamannaborg er borgin tilvalin til aslöppunar. Hér geturðu notið síðustu dagana á ódýru en huggulegri all-inclusive hóteli. Nokkur heilræði Að ferðast um Kúbu er ekkert mál en reiknaðu samt alltaf með auka tíma ef þú átt ákveðið stefnumót.
Verð á Kúbu eru skrýtin. Snakkpoki getur kostað jafn mikið og lítri af rommi.
Matvörubúðir geta verið nánast tómar. Ekki gera ráð fyrir miklu útvali af neinu.
Netið er mjög hægt. Taktu með þér usb lykil ef þú ætlar þér að taka mikið af myndum.
Ferðastu til Kúbu áður en það er um seinan
Ef það er einhver staður frekar en annar sem þú ættir að segja barnabörnunum frá þá er það Kúba. Nú þegar Fidel Casto er búinn að segja af sér þá veit enginn hvernig Kúba mun líta út eftir 20 til 30 ár. Kommúnisminn gæti horfið hægt og rólega nú þegar yngri bóðir Fidels hefur tekið við völdum því hann er talinn “vægara” eintak af Fidel. Ástandið á milli Bandaríkjanna og Kúbu gæti batnað vegna nýs Bandaríkjaforseta og Kúba gæti glatað þessu gamla stíl sínum, svo nú er tíminn til að ferðast áður en það er um seinan!
![]() |
||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|
![]() |
![]() |
|



































