![]() |
![]() |
![]() |
||||||||||
|
||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||
|
|||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||
![]() |
![]() |
|
![]() |
![]() |
|
![]() |
Hugarflug » Mið-Ameríka » Kosta Ríka |
![]() |
||||||||||||||||||||
![]()
Herlegheit Kosta Ríka
La Fortuna er fallegt svæði sem er fyrst of fremst þekkt fyrir virkni eldfjallsins Arenal. Eldfjallið er á meðal tíu virkustu eldfjalla í heimi og spúir daglega stórum reykskýjum og fljótandi hrauni uppí loftið – einstaklega tilkomumikil sjón. Við mælum með í skoðunarferðirnar sem í boði eru á kvöld- og næturlagi. Fossafall er afar vinsælt sport – já hér er hægt að láta sig falla í gegnum fossa. Og nóg er af fossunum á Kosta Ríka!
Hið svokallaða “white water rafting” er mjög vinsælt sport og hægt að iðka á mörgum stöðum á Kosta Ríka. Landið er hinn fullkomni staður spennufíkla og ævintýramanna.
Mounteverde Cloud Forest Fjöllin á þessu náttúrusvæði eru tilvalin til lengri gönguferða – og ekki skemmir fyrir stórbrotið útsýnið. Fáðu þér morgunmat á einum af stórbýlunum og athugaðu hvort þú spottir ekki hinn einstaklega fallega Quetsal fugl. Þessi staður er mjög sérstakur, sérstaklega vegna þokunnar sem á það til að umlykja regnskóginn. Manuel Antonio og Quepos
Hjá Manuel Antonio við Kyrrahafsströndina er að finna vinsælasta þjóðgarð landsins. Hér eru framandi dýr, má nefna slöngur, apa, risavaxnar eðlur, letidýr og að sjálfsögðu fugla í öllum heimsins litum. Við mælum með að ráða leiðsögumann því með þeirra hjálp getur þú séð miklu fleiri dýr en þú gerir á eigin vegum. Þessir sérfræðingar vita nákvæmlega hvar þeir eiga að leita!
Þorpið Quepos býr yfir miklum sjarma og hér er virkilega hægt að slappa af og njóta lífsins. Þorpið er rétt hjá skóginum og ströndunum. Hér er brimbrettaliðið, bakpokaferðalangarnir, fjölskyldur á ferðalagi, hástéttafólk – allt úir og grúir af fjölbreyttu fólki, jafn fjölbreyttu og flóran og dýralífið sem umlykur þetta skemmtilega þorp.
Tortuguero þjóðgarður Þessi tilkomumikli garður er mikilvægasti varpstaður sæskjaldbaka í allri Mið-Ameríku og Karíbahafi. Ef maður kemur hingað á varptímanum sem er frá apríl til október geturðu séð fyrstu skref þessarra stórkostlegu dýra þegar þau leggja leið sína, strax eftir klekjun, í átt til hafs.
Það er þriggja tíma sigling frá Puerto Limon til Tortuguero. Á leiðinni geturðu séð krókodíla, otra, apa, fljótaskjaldbökur, leðurblökur og fugla í öllum stærðum og gerðum. Algerlega ómissandi ferð!
Jaco Hér er hinn fullkomni brimbrettastaður þar sem heimselítan kemur að æfa og keppa. Ef þú hefur brennandi áhuga á þessu vatnasporti ertu kominn á réttan stað! Hér geturðu fengið kennslu í brettabruni og hér eru bestu strandpartíin! Jaco er tilvalinn staður til að hitta aðra bakpokaferðalanga og jafnvel eignast nýjan samferðamann.
Vegna stimpils Kosta Ríka sem brimbrettaparadís, býður höfuðborgin San Jose uppá góð og ódýr brimföt. Hér geturðu fyllt bakpokann þinn af fötum frá gæðamerkjum s.s. Volcom, DC og O’Neill. San Jose býður einnig uppá margt annað, til dæmis er einungis tveggja tíma keyrsla til Kyrrahafsins og Karíbahafsins. Strendur Karíbahafs henta vel þeim sem kjósa að liggja í sólbaði og synda í lygnu vatni en strendur Kyrrahafs draga meira að þá sem vilja fara á brimbretti.
San Jose er skipt í nokkur svæði og bestu og öruggustu svæðin eru frá 1-9, þar sem mælt er með að búa. Plaza de La Cultura og dómkirkjan í San Jose eru meðal staða sem skilyrði er að skoða á meðan dvalist er í borginni.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru, því er bara eitt í stöðunni: Smelltu á þig bakpokann og skelltu þér af stað á vit ævintýranna – núna!
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|
![]() |
![]() |
|




































