Safarí er eitthvað sem allir ættu að prófa, að minnsta kosti einu sinni á ævinni! Einstök og öðruvísi upplifun - það samþykkja allir sem hafa staðið á móti ljóni eða séð fíla fara yfir veginn fyrir framan sig. Við hjá KILROY gefum þér innsýn inn í þennan ævintýraheim með því að benda þér á bestu safaríferðirnar.
Á safarí er eins og öll vit skerpist. Þú vilt vera fyrstur í hópnum til að sjá ljónið, tígrisdýrið eða hvað það nú er sem þú og hópurinn þinn leitið eftir. Á sléttum Afríku er hægt að finna: ljón, fíla, sebrahesta, gíraffa, nashyrninga, flóðhesta, ljón, tígrisdýr, eðlur og apa, svo fátt sé nefnt.
1. Ljón
2. Fílar
3. Afrískur buffali
4. Nashyrningur
5. Tígrisdýr
1. Masai Mara, Keníu
2. Krüger, Suður-Afríku
3. Serengeti, Tansaníu
4. Chobe, Botswana
5. Etosha, Namibíu
 |
| Hópur frekra apa í Serengeti, Tansaníu að halda partí á þaki safaríjeppans. |
Viltu sjá górillur er það Úganda, Rwanda og Gabon sem þú átt að heimsækja - og við mælum með fyrir alla. Af stóru vinsælu safarí-löndunum er Kenía ódýrust, en á sama tíma landið sem flestir heimsækja. Botswana heyrir til lúxus-landanna, þar sem tjaldbúðir eru vandaðar og allur lúxus er til staðar. Hér geturðu farið í ferðir í litlum hópum þar sem öruggt er að þú sjáir vinsælustu dýrin.
Krüger þjóðgarður í Suður-Afríku er afar góður kostur. Þú getur farið í safarí á eigin vegum og keyrt sjálfur í gegnum þjóðgarðinn. Hér eru vegir góðir og aðstaða einnig. Þó ráðleggjum við að þú ferðist með öðrum ferðamönnum í litlum hópi með leiðsögn. Þannig færðu mest út úr safaríinu því hér ertu með sérfræðing sem getur sagt þér frá öllu og sýnt flottustu staðina.
Áður en þú byrjar að skipuleggja safarí ferðina sína eru nokkrir hlutir sem ætti að huga að: Hvaða dýr vil ég sjá, hvernig vil ég ferðast um, hvernig vil ég búa, í hversu stórum hópi og svo framvegis. Úrvalið er möguleikarnir eru margir og því höfum við hjá KILROY sett saman nokkrar frábærar safaríferðir í Afríku.
 |
Konungur ljónanna? Ljónið er alla vega konungur
dýranna, og því einn af 'The Big Five'. |
Þægileg og létt föt, þægilega gönguskó eða stígvél. Flíspeysu, vindjakka, stuttbuxur, slitsterkar buxur, sólaráburð, flugnavörn, derhúfu, sólgleraugu, lítinn bakpoka, vasaljós, vatnsflösku, kíki, myndavél (og auka batterí!). Og svo bara leggja í hann...