Flúðasigling snýst um gúmmíbát eða kajak, ár, góðan fararstjóra og straumharða á - og þá ertu tilbúinn í slaginn! Við gefum þér hér góð ráð og sannfæringuna, áður en þú veist af þá ertu búin að bóka ferð með KILROY í flúðasiglingu!
Flúðasigling er sport sem allir geta tekið þátt í en þú skalt vera viðbúinn því að eyða jafnmiklum tíma utanborð eins og innanborðs. Í bátnum eru yfirleitt tveir fararstjórar, einn sem rær og annar sem gefur tilsögn og sér um almenna stjórn.
Flúðasigling er engin sunnudagsíþrótt svo þú skalt reikna með að þurfa að róa eins hratt og þú getur og því skaltu reikna með harðsperrum og aumum vöðvum.
Flúðasigling hefur nokkur erfiðleikastig, frá 1 uppí 6, þar sem 1 er mjög rólegt og 6 er ólgandi og frussandi fljót þar sem nær ómögulegt er að sigla í.
Þú getur farið í flúðasiglingu nær hvar sem er í heiminum. Nokkrir af bestu stöðunum eru að finna í Kosta Ríka, Zimbabwe, Chile, Kína, Kanada, Montenegro og Ástralíu
Í stærsta gili Coloradó geturðu siglt í frábæru landslagi og upplifað gleði og á fullri ferð upplifað gleðina við að sigla hina fögru og frægu Colorado River. Fljótið "opnar sig" þar sem stórir berghamrar falla þverhnípt niður -sannkölluð upplifun fyrir þá sem þora að láta sig flakka niður fljótið. Þú getur siglt allt svæðið, sem er um 300 km, á 6 dögum (!), en eftir það ertu eflaust helaumur í skrokknum. Þetta stóra gil breytist stöðugt, á einum stað er dimmt og þröngt, á öðrum bjart og opið. Hér eru fossar sem drynja og falla 100 metra niður og hér eru svakalegir klettaveggir sem teygja sig langt upp úr fljótinu.
Karnali River byrjar í Tíbet við Mount Kailash. Fljótið er í 12 tíma aksturs fjarlægð og 2 tíma göngu í vestur frá Kathmandu. Fljótið er í flokki 4-5 sem telst erfitt/mjög erfitt. Hér er grænt vatn og góðar hitabeltisstrendur - hvað er hægt að biðja um meira? Fljótið endar svo í Royal Bardia þjóðgarði þar sem hægt er að sjá hið fræga Bengal tígrisdýr. Ekki lélegt það!
Í 20 mínútna akstursfjarlægð frá Rotorua í norðurhluta Nýja Sjálands geturðu upplifað flúðasiglingu í tegund 5. Ferðin tekur mjög skjótt af, eða aðeins 30-45 mínútur vegna þess að um það bil í miðju fljótinu er 7 metra hár foss - og já þú átt að sjálfsögðu að fara niður hann! Þessi sigling er fyrir þá sem vilja upplifa stutta en hraða og skemmtilega ferð þar sem adrenalínið pumpar en ekki hanga í gúmmíbát í fleiri daga.
Góða skemmtun!