Brottför
Koma
Hugarflug » Karíbahaf
Karíbahaf

Karíbahaf



 Senda     Print   Bookmark and Share Skipta
KaríbahafLifðu lífinu í Karabíska. Það er erfitt að sleppa að brosa!

Ferðir til Karabíska hafsins - velkomin í paradís

Karabíska hafið er rétti staðurinn ef þú vilt liggja allan daginn í hengirúmi með kókosdrykk í annarri. Tilvalinn staður til að hlaða batteríin. Fyrir ævintýragjarna er hér að finna ógrynni af margvíslegu vatnasporti og hér er einnig alveg stórbrotin náttúra. Kauptu ferðina til Karabíska hjá KILROY travels!
 


Í Karabíska hafinu eru meir en 7000 eyjar og hafið nær frá Flórída til Venesúela. Þótt þetta sé lítið landsvæði eru eyjarnar ansi menningalega frábrugðnar.  

Hinar fjölmörgu Karabísku eyjar
Kúba er uppáhald margra ungra ferðamanna því landið býr yfir merkilegri sögu og sérstakrar tónlistar og dansmenningu. Hér geturðu fræðst um Kúbu og um leið aukið færni þína í romm drykkju og vindla reykingum. Farðu á spænsku námskeið, njóttu hvíldarinnar á góðu hóteli eða skelltu þér í ævintýraferð til að virkilega upplifa eyjuna.

Jamaíka er annar athyglisverður staður sem býr yfir mikilli menningararfleifð. Einnig ef Jamaíka málið ef þú ert mikill aðdáandi reggae tónlistar.

Dómíníska Lýðveldið er einnig vinsæll áfangastaður meðal unga fólksins. Hér eru verð lág, strendurnar klikkaðar og vindurinn fullkominn fyrir vatnasport svo sem brimbretti eða kitesurfing.

Trinidad og Tobago er svo málið ef þú vilt sjá fræga karnivalið þeirra og einnig ef þú ert mikið fyrir að blanda saman strandarfílingi með músík og dans.
Strendurnar í Karabíska hafinu bera af.


Það úir og grúir af eyjum í Karabíska hafinu svo úrvalið er mikið. Hafðu samband við ferðasérfræðinga okkar hjá KILROY til að vera viss um að þú veljir besta staðinn fyrir þig. Þú getur einnig farið í "multi-stop Caribbean island hopping" til að fá innsýn inní mismunandi eyjamenningu.

Að komast til Karabíska hafsins
Þú getur komist til Karabíska hafsins á mismunandi vegu. Aðeins fáar eyjanna bjóða uppá beint flug frá Evrópu svo það er líklega að þú þurfir að millilenda á leið þinni. Það getur einnig verið þrautinni þyngra að finna réttu leiðina, svo kynntu þér málið hjá sérfræðingum okkar hjá KILROY. Karabísku eyjarnar eru einnig vinsæll viðkomustaður þegar ferðast er til Norður-, Mið- eða Suður-Ameríku.

Gisting á Karabíska hafinu
Ef þú vilt fá mest fyrir peninginn skaltu gista á “all-inclusive” hóteli. Þú færð allar máltíðir og drykki innifalda í verðinu – á svipuðu verði og venjulegt hótel. Annar möguleiki er að gista á minni hótelum, svokölluðum budget hótelum. Vertu búinn að kanna hvar hótelið er staðsett því ódýrari hótelin geta verið langt frá fjörugustu stöðunum.

Verðflokkar á Karabíska hafinu
Karabíska hafið er almennt talið dýr áfangastaður. Verðin eru samt misjöfn á milli eyja. Ef þú hefur valið að gista á “all-inclusive” hóteli þá geturðu nánast lifað á loftinu þegar þú ert kominn á staðinn. En svo fer það náttúrulega eftir því hversu hátt þú vilt lifa.

Hvenær er besti ferðatíminn
Fellibylatímabilið er frá maí til október og á þessu tímabili þá getur veðrið verið mjög óstöðugt. Á móti kemur að á þessum tíma er almennt ódýrara að ferðast. 

image
Hér geturðu slegið inn kontaktupplýsingar ef þú vilt að ferðaráðgjafi okkar hafi samband.
Subject:
Name:
Phone:
Email:
Hér finnurðu KILROY travels:

Hér geturðu sent okkur fyrirspurn ef þú hefur áhuga á að skella þér í eina af ferðunum okkar.
Name: Date:
Phone: Time:
Email:
Verslun:
 
image
image