KILROY tryggir þér bestu flugverðin á markaðinum! Við erum með mjög góða samninga við yfir meira en 50 flugfélög og getum því boðið þér ódýra flugmiða til nánast allra áfangastaða í heimi.
Þú getur fundið ódýra flugmiða hér á heimasíðunni með því að nota leitarvélina til hægri. Hjá KILROY bjóðum við uppá tvennskonar flugmiða:
- Standard ticket
- KILROY ticket (fyrir ungt fólk og námsmenn)
Hér að neðan geturðu lesið þér til um hvern miða fyrir sig.
Standard ticket
Þessi tegund flugmiða gildir fyrir alla sem vilja bóka aðra leið eða báðar leiðir. Það er ekkert aldurslágmark eða takmörkun og það þarf hvorki að hafa ISIC námsmannakortið né IYTC kortið - fyrir ungt fólk. Það er hvorki hægt að breyta né endurgreiða almennan flugmiða eftir kaup. Almenna flugmiða er hægt að kaupa á netinu eða í gegnum tölvupóst.
KILROY ticket
Þessi tegund flugmiða gildir fyrir ungt fólk til 26 ára aldurs og námsmanna til 33 ára aldurs. KILROY miðar eru oft sveigjanlegir og henta vel þeim sem vilja aukið frelsi og sveigjanleika á ferðalaginu. Með KILROY miða geturðu breytt ferðadagsetningu og oft áfangastað, bæði fyrir og meðan á ferð stendur. KILROY miðar henta vel fyrir lengri bakpokaferðalög, heimsreisu og nám erlendis. Vinsamlegast athugið að allar dagsetningar og áfangastaðabreytingar fara eftir lausum sætum á viðkomandi áætlunarleið. Þú getur keypt miðana bæði á vefsíðu KILROY og með því að hafa samband í tölvupósti.
Frekari upplýsingar um flugmiða
Mundu eftir að kaupa forfallatryggingu á sama tíma og þú kaupir flugmiðann (í síðasta lagi sama dag). Forfallatrygging tryggir endurgreiðslu á flugmiða ef þú skyndilega veikist fyrir brottför. Forfallatrygging kostar almennt 5-6% af verði flugmiðarins.
Ef þú ætlar í langt ferðalag og fleiri en einn áfangastað, skaltu alltaf velja KILROY flugmiða. Það felur nefnilega í sér að þú getur breytt miðanum á meðan þú ferðast án þess að þurfa að kaupa nýjan og dýran flugmiða. Ef þú ert til dæmis á bakpokaferðalagi er gott að geta breytt miðanum þegar þú ferðast um falleg og athyglisverð svæði og vilt stoppa lengur. Einnig kemur fyrir að þú þarft að breyta ferðinni í flýti og þá er gott að geta breytt fluginu.
Til að geta keypt KILROY flugmiða þarftu að eiga annað hvort ISIC eða IYTC kortið. Gildistími kortsins er eitt ár, en fer einnig eftir því hvenær árs þú kaupir það.
Val á flugfélagi
Við hjá KILROY erum sérfræðingar í að finna ódýrustu flugmiðana fyrir kúnnana okkar, en ef þú ert búinn að ákveða flugfélagið geturðu sent okkur fyrirspurn með tölvupósti eða leitað eftir miða og keypt hér á heimasíðunni.
KILROY travels vinnur að sjálfsögðu náið með öllum stóru og alþjóðlegu flugfélögunum, þar á meðal:
- SAS
- British Airways
- Finnair
- Air France
- KLM
- Thai Airways
- Lufthansa
- Icelandair
- Air New Zealand
- Cathay Pacific
- Austrian Airlines
- Qantas
- Singapore Airlines
- Swiss International Airlines
- TAP Air Portugal
Sætisval um borð
Þegar þú hefur bókað flugmiða hjá KILROY travels, færðu staðfestingu með bókunarnúmeri fyrir viðkomandi flugfélag. Með þessu númeri geturðu innritað þig á heimasíðu flugfélagsins um það bil 24 tímum fyrir áætlaða brottför og valið sjálfur sæti í leiðinni.
 |
| Hjá flestum flugfélögum getur maður tékkað sig inn á netinu og valið sjálfur sæti. |
|