Vertu alvöru bakpokaferðalangur og upplifðu heiminn á þínum eigin forsendum. Það eru ótalmargar hjólaferðir í boði um allan heim en stóra spurning er; hvaða ferð heillar þig?
Fá fría ráðgjöf
Fyrir þá allra ævintýragjörnustu mælum við með 15 daga hjólaævintýri um Rajasthan; að hjóla í gegnum Dehli, Udaipur og Jaipur er upplifun sem þú munt aldrei gleyma.
Ef þú ert aðeins meira fyrir þægindi ættirðu að íhuga hjólaferð aftur í tímann þar sem þú heimsækir tóbaksekrur og færð að upplifa alvöru kúbanska menningu.
Svo er frábært að hjóla um Tæland, Kambódíu og Víetnam þar sem þú færð að upplifa frábæra blöndu af fallegri náttúru, stórbrotinni sögu, heillandi menningu og líflegum borgum.
Ef þú vilt vera nær heimaslóðum, þá er margt að upplifa í Evrópu á hjóli. Það eru margar hjólaleiðir í ölpunum sem er vert að skoða, en af hverju ekki að skella sér í hjólaferð til Króatíu og upplifa stórbrotið landslag?
Fá fría ráðgjöf