Botsvana

Farðu í Safaríferð yfir fljót í Botsvana.
 

Ferðir til Botsvana - Öll Afríka í­ einu landi!

Í Botsvana í suðurhluta Afríku finnur þú það allra besta sem Afríka hefur upp á að bjóða á tiltölulega litlu svæði. Hér geturðu komist í safarí í Chobe þjóðgarðinum, kannað grösugar sléttur Okavango Delta, fengið sand milli tána í Kalahari eyðimörkinni og margt fleira. Ferðastu til Botsvana með KILROY!

Botsvana er landlukt land í suðurhluta Afríku með landamæri að Sambíu, Namibíu, Simbabve og Suður-Afríku. Landið er frekar fámennt með u.þ.b. 1,6 milljónir íbúa. Að ferðast um Botsvana í bíl getur verið langt ferðalag í gegnum autt og fábrotið landslag, en það á eingöngu við um suðurhluta landsins - norðurhlutinn er stórkostlegur! Gaborone er höfuðborgin, en ekki nauðsynlega borg sem verður að sjá. Við mælum frekar með að ferðast til Maun sem er fimmta stærsta borg Botsvana og þar ættirðu að hefja safaríferð og skoðunarferð um óseyrina Okavango Delta.    

Eyðimörk og óseyri

Okavango Delta er stærsta óseyri í heimi. Þetta svæði var eitt sinn hluti af ánni Makgadikgadi, en hún þornaði upp fyrir 10.000 árum síðan. Í dag er ekkert útrennsli frá Okavango til sjávar. Þess í stað rennur áin út á sanda Kalahari eyðimerkurinnar og þekur um 15,000 km² svæði. Um 11 rúmkílómetrar af vatni ná ú tá óseyrina og hluti vatnsins rennur lengra til suðurs og myndar ánna Ngami. 

Okavango er heimkynni mikils dýralífs og dregur að þúsundir ferðamanna á hverju ári. Það eru tjaldbúðir við óseyrina þar sem þú getur eytt nótt/um. Margar þessara tjaldbúða er aðeins hægt að nálgast á mokoro (kanó).

Saltsléttan

Makgadikgadi er stór saltslétta í norðurhluta landsins og er sléttan sú stærsta í heimi. Hér býr fjölmennasti sebrahesta-kynstofn Afríku. Að tjalda undir berum himni á miðri sléttunni er meiriháttar upplifun...ef það rignir ekki! Ef þú lendir í rigningu geturðu búist við meiriháttar leðjubaði.   

Þjóðgarðar Botsvana

Chobe þjóðgarðurinn í norðvesturhluta landsins er þriðji stærsti þjóðgarður Botsvana á eftir Central Kalahari Game Reserve og Gemsbok þjóðgarði. Chobe er vinsælasti þjóðgarður landsins, enda býr hann yfir mesta fjölbreytileikanum. Þegar dýrin byrja að streyma niður að Chobe ánni til að svala þorstanum á heitum síðkvöldum er erfitt að ákveða hvert skal líta því dýrin eru allsstaðar!

Moremi Game Reserve er annar þjóðgarður sem er vestanmegin við Okavango Delta og er nefndur eftir höfðingja BaTawana ættflokksins, Moremi. Yfir regntímabilið flæðir oft yfir Moremi og við og við er garðinum lokað sökum þess. Þú skalt passa þig að festa ekki jeppann í Moremi því það gæti reynst erfitt að komast burt! 

Veðurfar í Botsvana

Besti ferðatíminn er strax eftir regntímabilið, eða frá desember til mars. en frá miðjum apríl til júní er einnig frábær tími til að ferðast til Botsvana. Meðalhiti allan ársins hring er um 25°C, en á næturna yfir sumartímann getur hitinn farið undir frostmark.

Að ferðast um Botsvana

Auðveldasta og þægilegasta lausnin er að ferðast í litlum hópum með leiðsögumanni. Til þess að skoða svæði eins og Okavango, Moremi og Chobe er leiðsögn nánast nauðsyn. En þó geturðu einnig ferðast um á bíl. Vegalengdir eru langar og vegir beinir svo passaðu að sofna ekki undir stýri! Botsvana er tiltölulega hættulaust land miðað við mörg önnur lönd í Afríku. Fólk er mjög vingjarnlegt og því finnst það mikill heiður að ferðamenn velji landið þeirra sem áfangastað.

Góð ráð

Safarí meðfram ánni Chobe er algert möst, sem og ferð til Okavango. Og fyrst þú ert komin(n) á þessar slóðir þá verður þú að skoða Victoriufossana í Zimbabve sem eru aðeins í nokkurra klukkustunda fjarlægð frá Botsvana.   

Ummæli
blog comments powered by Disqus
Contact Contact