Kenýa
Kenýa hefur mörg andlit. Landið er kannski þekktast fyrir þægilegar strendur og óteljandi afþreyingarmöguleika. Það er góð ástæða fyrir því að landið er talið eitt af bestu löndunum til að ferðast með bakpoka. Að ferðast í Kenýa er ódýrt og auðvelt. Hér geturðu rekist á villt dýr, notið sólarupprásar í 5000 metra hæð, snorklað og skokkað á snjóhvítum ströndum, tekið andköf yfir fegurð Rift Valley, og hitt vingjarnlegt fólk.
Það eru miklar líkur á að ferðalagið þitt hefjist í höfuðborginni Nairobi. Hér í næstum 2000 metra hæð, er loftslag ekki jafn heitt og þú hefðir búist við. Þótt að hinn nútímalegi miðbær Nairobi laði ekki til sín ferðamenn eru nálæg úthverfi skemmtileg og þess virði að heimsækja. Hér má nefna Nairobi þjóðgarð, sem byrjar við útjaðar borgarinnar og hýsir vinsælustu dýr jarðar, 'The Big Nine', að fílnum frátöldum. Ef þú þorir ættirðu að prufa 'Nyama Choma' á næsta staðbundna veitingastað. Það er grilluð geit og þér mun eflaust þykja hún góð! Eftir máltíðina geturðu skorað heimamenn í billjard og spilað undir opnum himni.
Njóttu stórbrotna útsýnisins þegar þú gengur um sigdalinn East African Rift. Finndu þér þinn eigin heilaga friðarstað í þorpi nálægt stóru vatni. Þegar sólin sest og kertaljós er eina lýsingin skaltu ekki gleyma að virða fyrir þér stjörnubjartan himininn. Fyrir reynda bakpokaferðamenn er algert skilyrði að upplifa sólarupprásina við Lenana, sem er einn af tindum Mount Kenya. Með 'matatu' farartæki, frá Nairobi til róta Mount Kenya, er aðeins 4 til 5 klukkustunda ferð. Þegar þú ert kominn geturðu svo farið í margra daga gönguferð í gegnum stórbrotið og fjölbreytt landslag og er umhverfið hér afar vel til þess fallið.
Ef þú ferðast um undraverðar gresjur Masai Mara eru miklar líkur á að þú sjáir uppáhaldsdýrin þín. Yfir 3 milljónir spendýra búa á Masai Mara. Safaríferðir er hægt að bóka fyrirfram eða á svæðinu. Til dæmis er Kenya Wildlife Safari spennandi valkostur. Hér ferðu í sjö daga leiðangur um Masai Mara en einnig á aðra áhugaverða staði eins og Lake Naivasha og Lake Nahuru. Hér sérðu nashyrninga, flóðhesta og bleika starandi flamingóa. Ferð til Amboseli, sem er fræg fyrir gífurlegan fílafjölda, myndi svo fullkomna safaríferðina þína.
Sjávarréttirnir við strandlengju Kenýa eru himneskir! Þegar þú ert búinn að borða skaltu njóta bragðsins af ferskum berjashake (þú verður að prófa ástríðuávöxt með banönum og mangó) á meðan þú liggur og flatmagar í hengirúmi og horfir á sólsetrið yfir hafið og perluhvíta ströndina.
Heimsæktu Lamu eyju þar sem tíminn stendur í stað og bílar eru bannaðir. Asnar eru vinsæll flutningsmáti sem skapar afslappaða og einstaka stemmningu. Leitaðu í höfninni að skipstjóra sem er til í að taka þig á 'dhow'. Á þessum heimabyggða viðarbáti geturðu veitt þér til matar og notið fallegs útsýnis eyjunnar.
Contact