Nairóbí
Nairóbí er afskaplega fjölbreytt borg, sem ekki má gleyma að skoða þegar ferðast er um Afríku. Næturklúbbar eru í vestrænum stíl, barir og veitingastaðir í miðbænum eru umkringdir skýjakljúfrum og rétt utan við borgina geturðu skoðað afar fjölbreytt dýralíf.
Þar sem Nairóbí er beinlínis á miðbaugi jarðar getur verið að þú búist við að hér sé bæði heitt og rakt loftslag. Hins vegar, þar sem borgin er staðsett í nærri 2000 metrum, þá fer hitastigið aldrei yfir 25 gráður. Þetta gerir borgina að frábærum dvalarstað, þótt nætur geta verið kaldar. Dýralíf Nairóbí Fjarri líflegu umhverfi og fjölmenningar Nairobi býður borgin uppá marga möguleika dýralífsskoðunar. Nairóbí þjóðgarður er án efa einn af þeim. Hann byrjar þar sem borgin endar og í garðinum eru vinsælustu dýr jarðar - að undanskildum fílnum. Það er algerlega þess virði að heimsækja bæði friðlýsta skógarsvæðið Ngong Road Forest Sanctuary, og Rhino and Elephant Orphanage sem er hæli fyrir munaðarlausa nashyrninga og fílsunga. Þú getur einnig skipulagt dagsferð sem gefur þér útsýni yfir sjóndeildarhring Nairobi frá Ngong fjöllunum, sem eru 25 kílómetra fyrir utan borgina. Ef þú lítur í hina áttina geturðu séð stórbrotið útsýni yfir útjaðar Rift Valley.
Hefurðu áhuga á að heyra um nýlendutímann? Þá skaltu fara í dagsferð og heimsækja til dæmis Norfolk hótelið, Karen Blixen safnið (manstu eftur kvikmyndinni Out of Africa?), og þjóðminjasafn Kenýu. Heimsókn til "Bomas of Kenya" mun einnig gleðja þig. Svæðið er ferðamannasvæði sem var stofnað árið 1971 í þeim tilgangi að varðveita og efla fjölbreytt menningarverðmæti ólíkra ættbálka í Kenýu. Hér geturðu fylgst með þjóðardönsum og öðrum siðum og venjum áttbálkanna.
Ef þig langar til að hvíla þig á ysi og þysi miðborgarinnar skaltu taka "matatu" og ferðast aðeins út fyrir annasömustu svæði Nairobi. Kenýubúar eru í eðli sínu afar rólegir og því skaltu fara inná nærlægan veitingastað, taka því rólega og slappa af, og panta þér "Nyama Choma". Hálftíma seinna ertu í því að dýfa meyru grilluðu kjöti í salt og njóta bragðsins af Nairobi! Með Tusker bjór í hendi áttu ekki erfitt með að kynnast enskumælandi heimamönnum. Þeir hafa afar gaman af borðfótbolta og billiard svo ef þú hefur tíma og vilt kynnast heimamönnum þá skaltu endilega skora þá í leik.
Hafðu í huga að Nairóbí er þekkt fyrir háa glæpatíðni. Því skalt vera á varðbergi allan tímann, sérstaklega ef þú ferð út að kvöldlagi.
Naíróbí er kjörinn byrjunarreitur fyrir þig og ferðina þína í gegnum Kenýa. Ef þú ert ekki búinn að skipuleggja skoðunarferðir að heiman er upplagt að skipuleggja safaríferðina eða gönguferðina yfir Kilimanjaro eða Mount Kenya hér, því hér eru fjölmargir ferðaþjónustuaðilar sem geta hjálpað þér.
Contact