Filippseyjar

Njóttu lífsins á Camotes Islands.
 

Ferðir til Filippseyja - Ótrúleg hitabeltisparadís

Filippseyjar er óskadraumur sérhvers bakpokaferðamanns. Kristaltært vatn til að synda í, stórir litríkir fiskar, hvítar sandstrendur og köfun. Það eru svo margar fallegar eyjar hér til að kanna! Gakktu á eldfjöll, slappaðu af á fallegu ströndunum og kafaðu um litríku sjávarríkin. Ferðastu til Filippseyja með KILROY travels!

Ef þú ætlar í heimsreisu um suðaustur Asíu máttu alls ekki gleyma að heimsækja Filippseyjar! Þessi einstaki eyjaklasi hefur uppá svo marga gimsteina að bjóða. Landið samanstendur af 7,107 eyjum og á hverri eyju geturðu fundið guðdómlegar strendur! 

Nágrannalönd eru Indónesía, Malasía, Palau og Kína. Filippseyjar eru heimili 90 milljón manna! Landið var áður fyrr nýlenda, fyrst Spánverja svo Ameríkana. Filippseyjar urðu svo sjálfstætt lýðræðisríki árið 1946. Það er ekki langt síðan Filippseyjar iðnvæddust, og er ferðaþjónusta mikil og vel þróuð á mörgum af eyjum, sérstaklega í Manila. Filippseyjar eru í dag mjög vestrænar og er forseti landsins kvenmaður, sem segir mikið um nútímaviðhorf og stöðu kvenna í landinu. Það eru þrjú tungumál töluð á Filippseyjum: enska, filipeyska og spænska.

Manila og eldfjöll

Flestir ferðamenn hefja ferðina í Manila, vegna flugsins. Förinni er svo yfirleitt heitið til Cebu eyjar. Hún er minni og talin huggulegri en stóra Manila. Frá Cebu eyju geturðu svo skipulagt dagsferðir til margra hrífandi eyja. 

Almennt sér eru Filippseyjar mun skemmtilegri áfangastaður fyrir bakpokaferðalanga en þú skyldir kannski halda. Frábær matur, góð gistiaðstaða, hjálpsamt fólk og guð minn góður, allar þessar eyjar! Smá viðvörun: þú gætir misst þig í þessu landi, hér er sko paradís fyrir verslunarglaða, meira að segja ódýrara en í Tælandi…

Mikið er af eldfjöllum og regnskógum á Filippseyjum. Mount Apo Mindanao er hæsta fjall Filippseyja og er um 2,954 metrar á hæð. Til gamans má geta að Hvannadalshnjúkur, hæsta fjall Íslands er 2,110 metrar. Á Filippseyjum eru virkir eldgígar, til dæmis Mayo og Mount Pinatubo. Stöðuvatn eldgígsins er einstaklega töfrandi og vel þess virði að skoða.  

Kafaðu niður í paradís

Áhugamenn um köfun dragast að Filippseyjum, sem er heimsþekkt fyrir ríkt sjávarlíf og ógrynni góðra köfunarsvæða. Hér opnast bókstaflega gnægð lífs og litar um leið og þú stingur höfðinu undir vatn. Það borgar sig að kanna markaðinn svolítið áður en fjárfest er í köfun því söluaðilar eru jafn margir og köfunarsvæðin. Panglao eyja er ein af mörgum tilvöldum eyjum til köfunar, sama á við um Moalboal á vesturströnd eyjarinnar Cebu. Aðeins 10 mínútum frá ströndinni geturðu svo fundið fullt af flottum neðansjávar undrum þar sem hægt er að sjá skötur, skjaldbökur og að sjálfsögðu endalausa hópa litríkra fiska. 

Gönguleiðir

Ef þú hefur áhuga á göngu ættirðu að ferðast til eyjarinnar Camiguin sem er nálægt Cebu og Bohol. Eyjan býður uppá skemmtilega gönguslóða að sjö eldfjöllum og einnig heitar lindir. Þú skalt endilega líka skoða hinn sökkvandi kirkjugarð eða "the sunken semetery", sem er alvöru kirkjugarður sem er sokkinn undir sjávarmál. Það eina sem sést af garðinum á yfirborðinu er einn stór kross. Vegna þessa er staðurinn einstakur og afar vinsæll til köfunar. 

Bohol og Chocolate Hills

Ferðastu á milli eyjunnar Cebu og eyjunnar Bohol og skoðaðu náttúruundrið Chocolate Hills, hæðir sem eru yfir 200 talsins. Á Bohol geturðu séð hið sjaldgæfa Tarciers dýr sem líkist hinu fræga Star Wars dýri Yoda! Tarciers er skemmtilegt lítið dýr sem situr í trjánum og borðar ávexti. Við mælum með skemmtisiglingu á ánni Lobok þar sem þú getur eytt nokkrum dögum og notið stórkostlegrar náttúru.

Hvenær er best að ferðast til Filippseyja?

Besti ferðatíminn er frá desember til Apríl þegar það eru engir fellibylir og þurrara loftslag en samt ekki of heitt. Veðrið er almennt frekar rakt og heitt. Varastu að vera á ferðinni yfir páska og jól nema þú viljir vera umvafin/n ferðamönnum. 

Gamlárskvöldi er fagnað með miklum flugeldum, eins og á Íslandi, en Filippseyjar hafa það fram yfir Ísland að hér er hiti! Um miðjan janúar er gaman að fylgjast með hinni skrautlegu og litríku Sinulog trúarhátíðinni sem á sér stað árlega í Cebu. Hátíðarhöldin standa yfir í 9 daga og er alveg vel þess virði að fara og skoða.

Öryggisráðstafanir

Fellibylir eru margir á ári á Filippseyjum. Auk þess, þar sem eyjarnar liggja á hinum svokallaða Pacific Ring of Fire, svæði við Kyrrahaf í laginu eins og  skeifa, þar sem eldvirkni er mikil og stöðugar jarðhræringar eiga sér stað. Mundu því að fylgjast vel með fréttum og veðurspám.  

Ummæli
blog comments powered by Disqus
Contact Contact