{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
delhi-india-rickshaw-traffic-cover
delhi-india-henna-ink-tattoo-hands-sidebar

Delhi

Þegar þú stígur út úr flugstöðvarbyggingunni átt þú strax taka eftir því hvað allt er ólíkt því sem þú hefur áður upplifað. Ekki einungis er fólk allsstaðar heldur einnig er andrúmsloftið afar rykmettað. Fylgdu því tískunni og taktu með þér trefil til að halda fyrir vit þín. Gefðu svo Delhi smá tíma til að heilla þig, þú munt fljótlega læra að meta mannmergðina og lyktina!

Fá fría ráðgjöf

Miðbær Delhi

Miðbær Nýju-Delhi er mjög fallegur en áhugavert er að sjá fjölbreytileikann í þeim hverfum sem þar mætast. Hið stóra, glæsilega alþingishús er umkringt af stórum görðum og það sama má segja um konungshöllina. Ferðamannastraumurinn liggur að Sigurboganum (e. Arch of Triumph) en hann stendur við endann á Ceremonial Avenue sem byrjar við konungshöllina.

Fá meiri upplýsingar

Hof í Delhi

Mundu efti því að taka með síðbuxur og langermabol, sama hver veðurspáin er því að þú þarfnast þessa fatnaðar ef þú ætlar að skoða eitthvert af hinum fallegu hofum í Delhi. Í sum þeirra færð þú ekki að fara inn í nema fætur þínir séu huldir en samt þarf þú að fara úr skónum áður en þú ferð inn. Sum hof rukka aðgöngugjald en heimsóknir í flest þeirra er ókeypis aðgangur. Mjög áhugavert er að skoða Lótushofið (e. The Lotus Temple), þar sem helgiathafnir eru haldnar daglega. Einnig mælum við með Quatab Minar, suður af Delhi, þar sem þú finnur meðal annars fyrstu mosku Indlands og eitt af undrum Indlands, hina sjö metra háu járnsúlu.

Fá meiri upplýsingar

Að ferðast um Delhi

Þegar þú lendir á flugvellinum í Delhi er lang best að láta einhvern sækja þig og við mælum alltaf með því. Þetta getur verið í gegnum hótelið eða ferðina sem þú ert búinn að bóka. Því næst er að taka leigubíl.

Það er hins vegar mjög auðvelt að ferðast um í Delhi. Þar eru leigubílar, hjól og autoriksha (þriggja hjóla farþegavélhjól) alls staðar. Fátæktin er mikil og er algengt að ferðamenn séu plataðir af riksha og autoriksha bílstjórum. Algengt er að þeir fara með ferðamenn inn í búðir til að fá þóknun frá búðareigendum, viðskiptavinirnir þurfa ekki endilega að kaupa neitt, bílstjórinn fær samt sinn hlut. Til að komast hjá þessu getur þú alltaf greitt bílstjóranum aðeins meira eða það sem hann hefði fengið frá búðinni, við erum að tala um mjög lágar upphæðir (um 50 krónur). Ef þú vilt taka leigubíl er auðveldast að semja um verð fyrirfram. Þú getur líka leigt bílstjóra/leiðsögumann í heilan dag og skipulagt ferðina fyrirfram.

Fá meiri upplýsingar

Hótel í Delhi og önnur gisting

Mundu að hótelstaðallinn í Indlandi er talsvert öðruvísi en heima. Þriggja stjörnu hótel gæti verið virkilega óaðlaðandi staður. Það gæti því stundum verið góð hugmynd að borga aðeins meira fyrir gistingu, eða koma með eigin svefnpoka til að nota á hótelinu.

Hægt er að fá gistingu í hvaða verðflokki sem er en mundu eftir því að skoða alltaf herbergið áður en þú ákveður þig og á flestum gistihúsum er auðvelt að fá betra verð ef þú kaupir nokkrar nætur í senn. Jafnvel þó það sé heitt úti geta næturnar verið kaldar og því er kannski mikilvægara en þú heldur að geta farið í heita sturtu á gististaðnum.

Fá meiri upplýsingar

Ferðaráð frá okkur! 

Ef þú hefur ekki mjög mikla ferðareynslu þá mælum við hiklaust með að fara í skipulagða ferð. Og ef það hentar þér ekki, pantaðu þá allavega fyrstu næturnar að heimann. Ferðaráðgjafi okkar getur aðstoðað þig með þetta. 

Vertu með varann á þér þegar þú ferð út að kvöldi til, sérstaklega ef þú ert ung, vestræn kona. Taktu með þér magatöflur, til vara, líklega þarftu þó ekki að nota þær!

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Delhi

Það er ákveðið sjokk að koma til Delhi; mikið um mannfólk, dýr og umferðin mikil. Þessi borg hefur hins vegar upp á margt að bjóða og við mælum með að heimsækja hof borgarinnar og konungshöllina. 

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Delhi

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.