{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
cairns-australia-cape-tribulation-cover
cairns-australia-great-barrier-reef-aerial-sidebar

Cairns – Köfunarparadís Ástralíu

Cairns er hitabeltisparadís Ástralíu, þar mætir stærsta kóralrif í heims, The Great Barrier Reef, gróðursælu landi og regnskógi. Sjálf borgin Cairns er kannski ekki stærsta afhjúpun í heiminum, en þar er mikið af frábærum gistimöguleikum og þar er líflegt umhverfi fyrir bakpokaferðalanga.

Fá fría ráðgjöf

Hér getur þú séð Kóralrifið mikla

Borgin er auðvitað fyrst og fremst þekkt fyrir æðislegt umhverfi en þar ber helst að nefna hið magnaða Great Barrier Reef, stærsta kóralrif í heiminum, en það er ótrúlega stórt og fallegt. Höfnin í Cairns er full af köfunarfyrirtækjum og bátum sem bjóða ferðir um kóralrifið. Ef þú hefur ekki tíma til að kafa þá er möguleiki á að fara í ferð þar sem þú færð allar upplýsingar í bátnum þegar þú siglir í átt að áfangastað þínum. Þar getur þú síðan kafað í stuttan tíma í einu með leiðbeinanda.

Kóralrifið mikla (e. Great Barrier Reef) liggur að stórum hluta meðfram ströndinni í Queensland. Í norðurhlutanum, nálægt Cairns, er styttri vegalengd frá meginlandinu að góðum köfunarstöðum. Taktu tíma í að skoða hvað er í boði og finna bestu verðin og möguleikana áður en þú ferð í köfunarævintýri lífs þíns. Það er auðvitað líka í boði að snorkla í sömu ferðum.

Sama hvað þú velur þá muntu upplifa þennan dásamlega heim sem liggur undir sjávarborði jarðar. Kóralrifið er einstakt og það er ástæða fyrir því  að það er á heimsminjaskrá UNESCO. Þannig er vandlega passað upp á að það spillist ekki.

Fá meiri upplýsingar

Raki, fegurð og heillandi umhverfi

Norðurhluti Queensland sem umkringir Cairns er kjarni hitabeltis Ástralíu. Þar er náttúran græn og gróðursæl, þökk sé miklum rigningum og þrumuskúrum frá nóvember til mars. Á þessum tíma gætu fellibylir farið yfir svæðið, þannig að ferðamenn ættu að hafa það í huga!

Ferðir inn til landsins eru nauðsynlegar, sérstaklega til hálandanna í suðvestri við borgina. Atherton Tableland, er mjög góður staður með ám, fossum og mikið af áhugaverðum sveitaþorpum og sveitabæjum. Í eldfjallagarðinum Undura Volcanic Park getur þú skoðað spennandi hraunæðar, hella og göng.

Í átt til norðurs

Þegar þú hefur upplifað lífið hjá fiskum, friðsælum hákörlum og sæhestum í hafinu, ásamt því að slaka á í skugganum af hinum fjölmörgu börum og kaffihúsum í Cairns, gætir þú haldið áfram norður. Nágrannaborgin Port Douglas er í jafnvel enn fallegra umhverfi en Cairns (og býður einnig upp á góðar köfunarferðir í rifinu). Hafðu einnig í huga að skoða Daintree National Park í Cape Tribulation, þar sem regnskógurinn umlykur yndislegar strendur í dásamlega fallegu umhverfi. Hvernig væri svo halda áfram enn norðar, að nyrsta hluta Ástralíu, Cape York Peninsula? Eini vegurinn að þessum stað er auðvitað oft frekar holóttur og leirugur. Þú ekur í gegnum gróðursælan frumskóg og framhjá dásamlega fallegum stöðum. Sjálf bílferðin þangað frá Cairns verður að ævintýri! 

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Cairns

Flestir sem koma til Cairns eru komnir til að sjá kóralrifið mikla (Great Barrier Reef) en við mælum einnig með að heimsækja einnig Atherton Tableland, fallegur staður með skemmtilegum sveitabæjum, fossum og ám.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Cairns

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreying í Cairns

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.