Sydney er geggjaður staður til þess að læra að surfa fyrir alla, bæði byrjendur og lengra komna. Þannig færðu sem mest út úr dvölinni þinni í Ástralíu; lærir að surfa, færð aðgang að helsta búnaðinum og gistir á stað með fleiri hressum bakpokaferðalöngum víðsvegar að úr heiminum.
Þegar þú ert ekki að leika þér í öldunum geturðu gert það sem þú vilt! Sydney er stór borg sem býður upp á eitthvað fyrir alla! Það er mikið um flottar surfstrandir í Sydney og getur þú valið á milli mismunandi staða til þess að surfa á. Þú getur einnig farið í surfferðir þar sem ferðast er frá A til B en gist og surfað á ólíkum stöðum á leiðinni.
Fá fría ráðgjöf