Spánverjar stofnuðu Antigua árið 1543 og nú er hún á heimsminjaskrá UNESCO. Árið 1773 eyðilagðist stór hluti borgarinnar í mörgum jarðskjálftum en byggingarnar hafa verið endurreistar. Antigua er staðsett í dal sem er umkringdur þremur stórum eldfjöllum en Volcán de Fuego er enn virkt. Borgarmyndin er undir miklum áhrifum frá spænskum nýlendustíl, en þar eru fallegir húsagarðar og steinlagðar götur. Þar er andrúmsloftið yfirleitt mjög afslappað.
Hvað er hægt að gera og sjá í Antigua?
Skelltu þér á kósý kaffihús og fáðu þér eitt af besta kaffi í heimi sem ræktað er í Antigua. Farðu á gott veitingahús og borðaðu á þig gat. Antigua býður einnig upp á skemmtilegt næturlíf.
Arco de Santa Catalina er eitt af mörgum áhugaverðum fornminjasvæðum borgarinnar en Cathedral Metropolitana varð að hluta til fyrir skemmdum í jarðskjálftunum en hefur verið endurgerð að fullu.
Nálægt borginni eru þorp og bæir sem við mælum með að heimsækja; Ciudad Vieja, Jocotenango, San Juan El Obispo, Santa María de Jesús, San Bartolomé Milpas Altas og Santa Catalina Barahona.
Á Chichicastenango markaðnum er selt hágæða indjána listmuni, vefnaðarvörur og kaffi.
Farðu í dagsferð til að sjá virkt eldfjall, Volcán Pacaya (2552m) en það er magnað að sjá fljótandi hraunið með berum augum! Fjallahjólreiðar og hestaferðir eru svo góð leið til að kanna sveitaumhverfið.
Klæddu þig í dansskóna og dansaðu salsa og merengue! Það eru fjölmargir dansskólar í borginni þar sem þú getur farið á námskeið eða fengið einkatíma og í sumum þeirra er hægt að fá fyrsta tímann frían. Salsakvöld eru líka haldin á mörgum börum.
Semana Santa
Antigua er þekkt fyrir skemmtileg trúarleg hátíðarhöld í páskavikunni, Semana Santa, í apríl. Þetta er stærsta hátíð ársins og þú mátt búast við því að hundruð innfæddra, sem og útlendingar, komi til með að upplifa þessi mögnuðu hátíðarhöld. Skrúðgöngurnar eru þess virði að fylgjast með og þú munt heillast af reykelsisilmnum, söngnum og margra metra löngum, fallegum skreytingunum. Þess má geta að þetta er einnig hátíð vasaþjófa. Það getur verið vandamál að finna gistiheimili í kringum hátíðarhöldin og við mælum með að bóka vel fram í tímann.
Ferðast í Antigua:
Það er mikið af ferðaskrifstofum og rútufyrirtækjum í Antigua. Í boði eru fjölbreyttar ferðir t.d. til Monterrico strandbæjanna, Panajachel in Lago Atitlán, Chichicastenango, eða að La Ceiba Mayarústunum í Honduras. Hedman Alas rútufyrirtækið starfar líka á eyjunum í Honduras flóa á ströndinni við Karíbahafið. Þú ættir einnig að skoða það að fara í skipulagða ævintýraferð til að sjá meira.
Öryggi:
Antigua er talin ein af öruggustu borgum í Gvatemala, en það er öruggara að vera ekki einn á ferð eftir myrkur. Ef þú lendir í einhverju er lögreglustöð í Parque Central.