Íslael, fyrirheitna landið, býr yfir mögnuðum sögum. Þar ríkir ekki einungis sagan sem við þekkjum um Jesú og kristna trú, heldur er landið einnig heilagur staður fyrir múslima og gyðinga. Fólk heimsækir hins vegar landið ekki einungis fyrir söguna heldur einnig landslagsins, matarins og til að sóla sig í Dauða hafinu. Þar eru einnig að finna áhugaverða markaði og skemmtilegt næturlíf sem er vert að kíkja á.
Jerúsalem - Hin heilaga borg
Hvort sem þú ert trúaður eða ekki þá verður það ógleymanleg upplifun fyrir þig að ganga um hina sögulegu borg, Jerúsalem. Hin fornu stræti, kirkjur, moskur, söfn og önnur kennileiti gera borgina að einstökum áfangastað. Þar munt þú einnig fá að sjá hvernig þrjú mismunandi trúarbrögð koma saman á sama staðnum. Jerúsalem er heilög borg fyrir múslima, gyðinga og kristna menn og fara þangað árlega um þúsundir manna frá öllum heimshornum í pílagrímsferðir. Þarna muntu upplifa hvernig múslimar heimsækja Dome of Rock og Al-Aqsa moskuna, gyðingar skilja eftir skilaboð til Guðs í grátmúrnum og kristnir menn ganga sömu leið og Jesú gekk áður en hann var krossfestur. Þetta eru aðeins nokkur dæmi!
Tel-Aviv – Nútímaleg stórborg
Ólíkt öðrum borgum í Ísrael finnurðu mjög vestrænt andrúmsloft í Tel-Aviv ásamt iðandi næturlífi og skemmtilegum verslunum. Það er hinn gamli arabíski bær, Jaffa, sem myndar miðbæ borgarinnar, ekki gleyma að stoppa þar og njóta mannlífsins. Þegar líður á kvöldið ættir þú að fara á aðalgötuna (e.boulevard). Taktu með þér vínflösku og horfðu á sólsetur yfir Miðjarðarhafinu! Í bakgrunninn heyrir þú síðan hvernig næturlífið tekur smám saman völdin.
Að fljóta í Dauðahafinu
Eitt af því sem allir ættu að reyna að upplifa er að láta sig fljóta á hinu heimsfræga Dauðahafi! Dauðahafið er í raun stöðuvatn en er tíu sinnum saltara en hafið og vegna þess flýtur þú þar eins og korktappi. Reyndu að setja fæturnar niður og finndu mótstöðuna! Þá er vatnið og leirinn einnig talið hafa læknandi og hreinsandi eiginleika. Settu á þig sólgleraugu, fáðu þér kokteil og njóttu lífsins!
Ein Gedi
Þegar þú hefur hvílt þig nóg við dauðahafið er kominn tími á smá hreyfingu. Í norðurhluta Ísrael, ekki langt frá Dauðahafinu, bíða Judean eyðimörkin og Ein Gedi þjóðgarðurinn eftir því að þú komir í könnunarleiðangur! Þar finnur þú frábæra gönguleið rétt fyrir utan Ein Gedi sem liggur beint í gegnum Judean eyðimörkina. Þetta er krefjandi ganga en útsýnið sem þú munt fá gerir hvert skref þess virði.
Ef einhver hélt að eyðimerkur landslag væri leiðinlegt og tilbreytingarlaust hafði hann algjörlega rangt fyrir sér! Á göngunni muntu sjá hvernig landslagið breytist á tíu mínútna fresti. Mundu bara að hafa nóg af vatni og láta vita áður en þú leggur af stað! Eftir gönguna geturðu stungið þér ofan í eitthvað af hinum ótal kælandi vötnum Ein Gedi. Láttu fossana leka á höfuðið á þér og njóttu þín í þessari paradís!
Þúsund og ein nótt í Akko
Í norðurhluta landsins finnur þú einn af mest töfrandi stöðum Ísrael, Akko. Borgin er ein af elstu borgum heims og þegar þú gengur í gegnum um hinn forna miðbæ er eins og tíminn hafi stöðvast. Litlar götur með leynigöngum, gamlir kjallarar og falleg lítil hús… það er eins og sagan um þúsund og eina nótt hafi lifnað við! Upplifðu hvernig hið einstaka andrúmsloft, fornu steingötur og byggingar og stórkostlega útsýni yfir Miðjarðarhafið gerir Akko að einn af mest heillandi stöðum í Ísrael.