Kanada

Tótem - Kanada
 

Ferðir til Kanada - Stórt, villt og einstakt.

Kanada er drauma áfangastaður ferðamanna sem vilja upplifa óbyggðir og hina sönnu fegurð Norður-Ameríku. Fólkið í Kanada er afar vingjarnlegt og borgir eins og Vancouver, Toronto og Montreal ættu endilega að vera heimsóttar. Athugaðu að Kanada er eitt af stærstu löndum heims. Þú getur því ekki bara stokkið uppí bíl og verið komin/n á hinn enda landsins samdægurs. Það tekur yfirleitt marga daga, svo vertu undir það búin/n!

Margir ferðamenn koma til Kanada í þeim tilgangi einum að skoða þjóðgarðana í héruðunum British Columbia og Alberta. Hér eru fallegir þjóðgarðar eins og Banff, Jasper, Kootenau og Glacier, sem eru staðsettir í hjarta Rocky Mountains. Snjóalögð fjöll með prýðisgóðum skíðasvæðum, stórkostlegt útsýni, góðir gönguslóðar og mikil veiðivötn eru dæmi um það sem bíður þín. Og fyrst þú ert á svæðinu þá er tilvalið að fara í ferð til Vancouver eyju sem er þekkt fyrir fallegar og friðsælar sjávarstrendur og hina sjarmerandi höfuðborg Victoria.  

Hinar flötu gresjur Kanada

Ef ferðast er lengra til austurs, til miðhluta Kanada, er auðnin gríðarleg. Borgirnar Saskatchewan og Manitoba eru hrikalega einsleitar að það er alveg sláandi, hér er allt svo einstaklega flatt, tómt og hljótt. En það þýðir ekki að þessir staðir heilli ekki, það gera þeir,  hver á sinn máta. Dreptu á bílnum, stígðu út og njóttu þagnarinnar. Ef himinn er heiður eru aðstæður kjörnar til útsýnis og myndatöku. Hér er einnig að finna afar vingjarnlegt fólk og hér ertu komin/n í ekta "wild wild west" stemmningu.

Austurhluti Kanada

Ennþá lengra til austurs finnurðu héröðin Ontario, Quebec, New Brunswick og Nova Scotia. Hér byrjar landslagið að breytast og opnast fyrir þér. Stóru stöðuvötnin í Ontario og Quebeck, Niagara fossar við landamæri Kanada og Bandaríkjanna, hinar tilkomumiklu sjávarstrendur í Quebec, New Brunswick og Nova Scotia og margt margt fleira. Prince Edward eyja býður uppá stemmingu og landslag í sérklassa og margar sögulegar minjar. Merkisstaðir eru margir í landshlutanum svo sem Louisburg National Historic Park og Cape Breton Highlands National Park í norðurhluta Nova Scotia.

Kanada er ekki Bandaríkin

Hafðu í huga að þú ert ekki í Bandaríkjunum. Ekki gera þau mistök að bera Kanadamann við Ameríkana. Kanadamenn búa að sínum eigin síðum og venjum og eru afskaplega stolt þjóð. Kanadamenn eru mjög vingjarnlegir og hafa gaman af því að spjalla við útlendinga, svo þú skalt ekki hika við að blanda geði við þá, hvort heldur það er á flottum bar eða á næstu bæjarkrá. 

Flestir íbúar Kanada búa í námunda við landamæri Bandaríkjanna þrátt fyrir háa ferkílómetratölu á hvern íbúa. Í norðri eru vegir fágætir og vetur harðir frá október til maí. Enginn hefur fyrir því að fara þangað nema sá hinn sami hafi sérstakan áhuga á freðmýri og heimskautsaðstæðum. Hins vegar, ef þú hefur óbilandi áhuga á vetraríþróttum og elskar að skíða, skauta, fara á íshokkí eða snjóbretti þá er Kanada svalur staður að heimsækja yfir vetrartímann. Banff og Whistler í vesturhluta Kanada eru á meðal bestu skíðasvæða í heimi og eru heimsótt á hverju ári af þúsundum ferðamanna. Hafðu augun opin, þú gætir komið auga á Grizzly-björn! Borgarlíf í Kanada

Þegar talað er um frábærar borgir í Norður-Ameríku þá eru borgirnar New York, San Francisco og Chicago yfirleitt nefndar. En hinar stórkostlegu stórborgir Kanada gefa þessum ekkert eftir. Vancouver, Toronto og ekki síst Montreal í frönskumælandi hluta landsins eru mjög líklegar til að hafa jákvæð áhrif á þig. Þær eru allar mjög líflegar, heillandi og þær bjóða uppá allt sem stórborgarhugur þinn gæti girnst. Frönsku áhrifin í Montreal og landsbyggðaborgin Ottawa eru afar sérstakar og bera með sér öðruvísi stemmningu sem ekki er hægt að finna í öðrum borgum Norður-Ameríku.

Blogg frá Kanada

Ef þú vilt lesa ferðasögur og upplifanir ferðamanna í Kanada skaltu kíkja á ferðabloggsíðu KILROY; blogs.kilroytravels.is. Hér geturðu einnig búið til ókeypis ferðablogg og sett inn myndir og myndbönd úr ferðinni þinni. Þú getur svo tengst Facebook í gegnum bloggið ef þú vilt að vinir og kunningjar geti fengið ferðasögurnar þínar og myndir beint í æð!

Ummæli
blog comments powered by Disqus
Contact Contact