Um 2200 kílómetrum frá næstu byggðu eyju (Isla Marquesas) og mun lengra frá meginlandi Chile er finna einn afskekktasti stað heims; Páskaeyjuna, Rapa Nui. Þessi dularfulli og goðsagnakenndi staður hefur í gegnum árin vakið upp margar spurningar og vangaveltur hjá ferðamönnum og rannsóknarmönnum um þau gríðarstóru steinandlit sem eru þar allt í kring og kallast Moais. Það er ekki aðeins steinstytturnar sem fær fólk til að heimsækja Páskaeyjuna heldur einnig landslagið, náttúran, köfun og sörf.
Hin þekktu andlit Páskaeyju
Já, stærsta aðdráttarafl Páskaeyju og ástæða þess að talsverður fjöldi fólks ferðast þessa löngu leið, eru fræg andlit, steinstyttur sem kallast Moais. Eyjan sjálf og náttúrufegurð hennar kalla þó líka á athygli. Þetta er eldfjallaeyja og landslag hennar markast af þremur óvirkum eldfjöllum; Terevaka, Poike og Rano Kau. Þessir eldgígar og hraunmyndanir í kring, ásamt glitrandi djúpbláu hafinu og fallegum ströndum, gera Páskaeyju að mjög áhugaverðum og eftirminnilegum áfangastað.
Það eru allt í allt 887 stykki af hinum frægu Moais á eyjunni. Ýmsar hugmyndir hafa komið fram um það hvenær stytturnar voru gerðar en flestir giska á að það hafi verið einhvers staðar á milli 400 og 1700. Annað atriði sem margir hafa velt fyrir sér, er hver hafi verið tilgangur þess að skapa þær en flest bendir til þess að þær séu virðingarvottur Rapa Nui fólksins til forfeðra sinna og guða. Það er svo einstök upplifun að sjá þessar dularfullu styttur og þú getur ekki annað en velt vöngum yfir því ótrúlega afreki sem gerð þeirra hefur verið.
Þú ættir að fara til Rano Raraku sem er eins konar ‘ræktunarstaður‘ fyrir Moai stytturnar, en þar eru ókláruðu stytturnar. Þú ættir líka að kynna þér Pólýnesískar hátíðarathafnir í Orongo þorpi.
Óþekktir kostir Páskaeyju – Köfun og sörf
Þessar gríðarstóru steinstyttur eru þó alls ekki eina ástæðan til þess að ferðast til Páskaeyju. Þessi einstaka eyja, langt úti í Kyrrahafi, hefur fjölmarga kosti sem flestir ferðamenn vita ekki af fyrr en þeir koma þangað.
Eitt dæmi um slíkt eru frábær skilyrði til köfunar en margir reyndustu kafarar heims finnst Páskaeyja vera einn af bestu köfunarstöðum í heimi, aðallega vegna þess hversu tært vatnið er. Moto Nui er besti og vinsælasti staðurinn fyrir köfun og snorkl. Á Páskaeyju er líka frábært að sörfa, einnig að mati margra bestu sörfara heims.
Að lokum eru fjölmörg tækifæri til að skoða hina ýmsu hluta Páskaeyju fótgangandi eða jafnvel á hestbaki því landslagið býður upp á það. Fyrir þá sem vilja njóta sólarinnar eru margar heillandi strendur við hið fallega Kyrrahaf og er Anakena Beach sú besta.
Ferðir til Páskaeyju og hagnýt ferðaráð
Páskaeyja er hluti af Chile svo það ætti ekki að koma á óvart að til þess að komast þangað þarf að fara í gegnum Chile. Þú getur til dæmis flogið frá höfuðborginni Santiago.