{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
galapagos-floreana-ecuador-cover
galapagos-sea-lion-ecuador-sidebar

Ferð til Galapagos

Galapagos eyjar eru staðsettar u.þ.b. 1.000 km vestur af Ekvador og meginlandi Suður-Ameríku og eru á margan hátt einstök dýralífsperla. Hvert sem þú ferð er umhverfið í kringum þig svo draumkennt að þú þarft að blikka augunum til þess að fullvissa þig um að þetta séu ekki hyllingar. Dýraríkið er stórbrotið og þar er að finna mögnuðustu dýr jarðarinnar. Upplifunin er lyginni líkust! Raunveruleikinn er þó sá að Galapagos eyjar eru stórkostlegar!

Fá fría ráðgjöf

Latar Iguana-eðlur, bláfættir fuglar og fleiri spennandi dýr

Það er ekki erfitt að hrífast af Galapagos eyjum. Ferðalangar fyllast þakklæti og undrun. Að stíga á land á einni af þessum eyjum eða kafa í sjónum í kringum þær má líkja við að snúa við steini og komast að því að undir honum er allt iðandi af fjölbreyttu lífi. Á hverri eyju gerir þú einstakar uppgötvanir en eitt af því sem er að finna á þeim öllum eru hinar lötu Iguana-eðlur sem teygja úr sér á hvaða steini sem þær geta fundið. Því þarftu að gæta þess hvar þú stígur niður, þó að það versta sem þær gætu gert þér sé að spýta á þig sjó (sem virðist vera uppáhaldsiðja þeirra).

Þegar þú færð nóg af þessum dónalegu Iguana-eðlum, er sem betur fer mikið úrval af öðrum mikilfenglegum upplifunum í dýraríki Galapagos; mökunardans hjá bláfættum súlum eða klaufalegum freigátufuglum með hálsinn útþaninn svo það minnir á blöðru, dramatísk slagsmál milli sæljóna, mörgæsir að dýfa sér og, síðast en ekki síst, gríðarstórar skjaldbökur bæði á landi og sjó. Svo er það auðvitað stórkostleg náttúran og landslagið sem gerir Galapagos eyjar að einstakri náttúruperlu; lón, kviksyndi, eldfjöll, dásamlegar strandir í mörgum mismunandi litum, gróft hraunr, landslag sem minnir á tunglið og margt fleira.

Einstakt vistkerfi Galapagos eyja

Fararstjórinn á bátnum sem þú siglir á um eyjarnar með fleiri ferðalöngum biður ykkur vinsamlegast um að hreinsa sandinn frá síðustu eyju af fótum ykkar áður en þið stígið á land á næstu eyju. Þessar eyjar eru svo viðkvæmar að ef þú flytur nokkur sandkorn frá einni eyju til þeirrar næstu gætu fylgt þér pínulítil frækorn sem gætu haft hrikalegar afleiðingar á hin viðkvæmu vistkerfi sem einkenna hverja eyju og eru frábrugðin vistkerfum allra hinna eyjanna. Eitt lítið fræ gæti, með öðrum orðum, komið af stað líffræðilegu ójafnvægi. Þessi vitneskja um Galapagos er eitt af því sem lætur ferðalanga dreyma um að komast þangað. Maður skilur mjög fljótlega hvers vegna eyjarnar eru svo hátt skrifaðar á heimsminjaskrá UNESCO og hvers vegna Charles Darwin notaði náttúruna og dýralífið á Galapagos eyjum sem megin rannsóknarverkefnið í þróunarkenningu sinni.

Ferð til Galapagos - ógleymanlegt ævintýri

Að koma til hinna töfrandi Galapagos eyja er svo ótrúleg upplifun að allt annað mun líta út fyrir að vera merkingarlaust í samanburði í langan tíma á eftir. Það er tilvalið að fljúga þangað frá Ekvador.

Fá meiri upplýsingar

Hvað á að gera á Galapagos?

Dýralífið á Galapagos er engu líkt svo ef þú kemur þangað þá skaltu ekki missa af því að skoða Iguana eðlur, bláfætta fugla og fleiri spennandi dýr.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Galapagos

Bloggið

Fleiri blogg

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.