Notaðu pung eða einhverskonar peningarbelti. Það kemur í allskonar stærðum og gerðum og eru í stuttu máli algjör snilld. Hafðu það nálægt líkamanum þar sem útlendingar geta ekki náð til þess. Geymdu svo vegabréf þitt, plast kort og hluta af peningnum í pungnum þegar þú ert að ferðast.
Vertu alltaf með einhvern pening í vasanum þínum eða í léttu veski í vasanum - en aldrei meira en þú mátt mögulega missa. Það er notað sem tálbeita gegn þjófum og sem bónus þá geturðu alltaf borgað fyrir minniháttar hluti án þess að þurfa sýna peningabeltið.
Öruggasti staðurinn fyrir ferðamenn að geyma peninginn sinn er á hótelinu, og ef hótelið er ekki með öryggishólf, þá gætu þau boðist til þess að geyma verðmæta hluti í umslagi í móttökunni. Næst öruggasti staðurinn þinn er í peningabeltinu. Þriðji öruggasta leiðin er falin í farangri herberginu þínu (við mælum samt ekki með því ef þú treystir ekki fólkinu sem er í herberginu). Fjórði öruggasti staðurinn er í tösku eða í vasanum þínum, vertu þá meðvitaður um að þú ertu að taka ágætisáhættu. Við ráðleggjum þér að vera ekkert að taka með þér vermæti þegar þú ert að ferðast um heiminn - og ef þú verður að flassa þessum demöntum, fyrir partý og til þess að líta vel út, vertu þá viss um þeir séu feik og missanlegir.
Margir ferðamenn hafa reynslu af þjófnaði og ránum á ferðalögum sínum. En þú þarft bara að hugsa smá og í mesta lagi að segja smá vinnu í þetta og það gæti breytt öllu og þú orðið mun öruggari fyrir vikið.
Slakaðu samt á, það er engin ástæða til þess skíthræddur og fá ofsóknaræði á meðan ferðinni stendur. Ef þú hugsar, notar almenna skynsemi og gerir ekki eitthvað heimskt þá mun allt ganga upp. Og það sem ekki gengur upp mun að lokum verið greitt til baka af tryggingunum.
Contact