Nokkrar góðar reglur um val gististaðar
Almennt er hægt að segja að staðlar og verflokkar fyrir gistingu, alls staðar í heiminum, falli í eftirfarandi flokka:
Það er ódýrast að gista í tjaldi á tjaldsvæðum. Það eru þó ekki öll lönd sem bjóða uppá jafn flott tjaldsvæði og aðstöðu eins og á Norðurlöndunum, öðrum hlutum Evrópu, U.S.A, Kanada, Ástralíu eða Nýja-Sjálandi. Á mörgum tjaldsvæðum er hægt að leigja kofa eða einhversonar rými/klefa.
Farfuglaheimili eða hostel er einnig ódýr lausn. Hér deilirðu oft bæði svefnsal og klósetti með öðrum ferðamönnum. Í mörgum löndum þarftu að kaupa félagskort sem leggst ofan á gistikostnaðinn. En þegar þú ert komin/n með kortið eru margir möguleikar á ódýrri gistingu.
Gistiheimili er þriðji ódýri kosturinn. Gistiheimili er hótel án stjarna, þar sem maður fær eigið herbergi með baðherbergi á ganginum.
Rúm og morgunmatur er annar gistimöguleiki sem á sér stað inni á heimili fólks. Þetta er nokkurs konar hótel þar sem yfirleitt eru 1-3 herbergi með baðherbergi á ganginum. Morgunmatur er heimalagaður og á sér oft stað með öðrum fjölskyldumeðlimum. Þessi tegund gistingar er sniðug ef þú vilt spjalla og kynnast menningu og venjum heimamanna, en þessi tegund gistingar er ekki útbreidd um heiminn.
Dýrasta lausnin er hótelgisting. Hér færðu lúxus og því fleiri stjörnur hótelið hefur þeim betra og dýrara er það.
Couch surfing er einnig vinsæl leið til þess að finna sér
gistingu og það frítt. Það snýst um að skipta á gistingu, sem þýðir
að þú verður að vera tilbúinn til þess að hýsa aðra ferðalagna
þegar þú ert heima. Hvort sem það hentar þér eða ekki þá er couch
surfing frábær leið til þess að fá að upplifa kúltúr landsins beint
í æð og stækka félagsnet þitt. Vertu þó með það bakvið eyrun að
coach surfing er ekki fyrir alla og hentar einna helst þeim sem eru
mjög opnir fyrir allskonar hlutum. Ef þig langar bara í herbergi
með þínum eigin skáp þá geturðu gleymt couch surfing! Í vissum
hlutum heimsins er einnig hægt að fá fría gistingu og jafnvel
máltið ef þú vinnur í sjálfboðavinnu 5-8 tíma á dag.
Við ráðleggjum að blanda saman gistimöguleikum. Sparaðu pening á
tjaldsvæðunum, hittu nýja vini á farfuglaheimili, slappaðu af á
gistiheimili og leyfðu þér að njóta svona inn á milli gistingar á
góðu hóteli - þannig geturðu komist langt fyrir peninginn og hlaðað
batteríin inn á milli
Contact