Flug

Flugmiðar eru nauðsyn ef þú vilt  ferðast um heiminn
Þú getur valið á milli þó nokkrum möguleikum á flugmiðum fyrir ferðina þína.

Venjulegur flugmiði

Venjulegir miðar er flugmiðar ætlaðir þeim sem þurfa aðeins að koma fram og til baka, t.d frá heimann til New York og til baka, ekkert merkilegra en það. Það er engin aldurtakmörk, engin krafa um IYTC Youth Card eða International Student IdentityCard (ISIC). Venjulega miða er ekki hægt að fá greidda til baka og ekki hægt að breyta þeim eftir að þeir eru keyptir.

KILROY flugmiði

KILROY flugmiði er fyrir ungt fólk að 26 ára aldri eða þá sem eru í fullu námi og eru 33 ára eða yngri. Þú verður að vera með gilt IYTC Youth Card eða ISIC International Student Identity Card (ISIC) til að geta keypt þessa miða. KILROY miðar eru sveigjanlegir og henta þeim sem vilja frelsi og sveigjaleika til að breyta miðanum, venjulega til að breyta dagsetningum á meðan ferð stendur. Á sumum KILROY flugmiðum er það möguleiki að breyta ferðinni (flug rútínuni) - bæði fyrir og á meðan ferð stendur. KILROY flugmiðar innihalda oft frí stopp og henta vel fyrir bakpokaferðalög, heimsreisur, þegar farið er í skiptinám og þá sem hafa áhuga á "working holiday" ævintýrum. Vinsamlegast athugið að allar breytingar háðar því að laust sé. KILROY miðar eru oft verðlagðir líkt og venjulegir miðar og sumir eru jafnvel ódýrari.

Þú ættir alltaf að velja KILROY flugmiða ef planið er að ferðast í lengri tíma eða til nokkra áfangastaða. Venjulega þýðir það að þú getur breytt miðanum á meðan þú ferðast án þess að kaupa nýjan, rándýran flugmiða. Sveigjanlegur KILROY flugmiða á vel við bakpokaferðalanga vegna þess að þeir eiga það til að rekast á óvart á einhverja manneskju, kúltúr eða staði sem eru svo fallegir eða áhugaverðir að þú verður bara að fá meiri tíma á þessum áfangastað. Einnig er alltaf gott að vita af því að það sé mögulegt ef manni langar að fljúga burt (heim eða annað) nokkrum dögum fyrr en áætlað var. 

Aðrir Flugmiðar

Ef þig langar til að fara nokkra áfangastaða á sérstöku svæði eða heimsálfu, þá gæti flugpassi hentað þér. Nokkuð mörg flugfélög bjóða upp á svona miða. Vinsamlegast ráðfærið ykkur við KILROY ferðráðgjafann þinn.

Forfalla trygging 

Mundu að kaupa forfalla tryggingu sem gefur þér möguleikann á að hætta við miðann (verður að vera keypt á sama tíma og miðinn). Skilmálar forfalla tryggingana eru breytilegir á milli landa, þannig mundu að athuga skilmála sem eiga við í þínu landi. Afpöntunar tryggingin kostar venjulega 5-6% af verði flugmiðana. Í það heila, KILROY reynir alltaf að finna ódýrasta miðann fyrir viðskiptavini sína, en ef þú hefur sérþarfir, langar að ferðast með einhverju félagi frekar en öðru hafðu þá endilega samband við KILROY ferðaráðgjafa okkar. 

Þegar bókað er á netinu

Athugaðu að oft er betra að leita fyrst að flugi til lokaáfangastaðar frá stórri borg innan Evrópu, t.d. London, Kaupmannahöfn, Amsterdam eða París. Leitaðu því næst að ódýrasta flugi frá Keflavík til viðkomandi borgar.
 

Helstu kostir við að leita svona að flugi eru: 

Í stærri borgum Evrópu eru möguleikarnir oftast fleiri en á Íslandi, bæði hvað varðar flugfélög og áfangastaði. Þetta þýðir að meiri líkur eru á að finna ódýrt flug. Þar að auki geturðu mun oftar keypt KILROY flugmiða frá þessum stærri borgum heldur en frá Keflavík.

Áhættan sem fylgir því að kaupa tvo eða fleiri aðskilda miða

Hafðu þó í huga að það fylgir því ákveðin áhætta að kaupa tvo eða fleiri aðskilda miða með mismunandi flugfélögum. Sé einhverju fluginu aflýst eða verði seinkun sem verður til þess að þú missir af öðru flugi er hvorugt flugfélagið ábyrgt fyrir því að endurgreiða þér flugið sem þú misstir af eða verða þér út um annan miða. En ef þú kaupir alla flugleiðina í einum miða í gegnum KILROY ertu tryggð/ur ef þú skyldir verða fyrir töfum eða breytingum á flugi. Ef þú hefur áhuga á því hafðu þá samband við ferðaráðgjafa okkar. 

 

Contact Contact