Gisting

Hvar ættiru að sofa þegar þú ert að ferðast um heiminn
Hvert sem þú ferðast, þá verðurðu að finna þér stað til að sofa og það á hverju kvöldi. Hvers vegna ekki að gera sér þetta auðvelt til að byrja með.

Við mælum sterklega með því að þú bókir fyrstu næturnar að heiman. Það er alls ekki gaman að lenda í því að vera í nýju landi, á óþekktum flugvelli eftir að hafa flogið í nokkra klukkutíma og vera ekki með stað til að sofa á. 

Bókaðu gistingu á öllum helstu áfangastöðunum

Við mælum alltaf með því að áður en þú kemur á áfangastaðinn að þú sért búin að bóka gistingu, sérstaklega eftir langt flug og þá í það minnst eftir að þú ferð að heiman. Þú þarft ekki að bóka fleiri en eina nótt og getur svo daginn eftir farið í að finna þér stað sem hentar þér. Eða þú getur bókað 2-3 nætur, skoðað borgina, og haldið svo áfram - þú hefur valið. 

Bakpokaferðalangar gista á hostelum

Þegar þú ert að ferðast sem bakpokaferðlangur þá munt þú aðalega vera leita af hóstelum eða annari ódýrari gistingu. Þjónustan og þægindin eru mismundandi eftir áfangastöðum, en almennt ættir þú ekki að búast við einhverjum lúxus nema þú sért tilbúinn til að borga fyrir alvöru hótel. 

 

Contact Contact