Vertu alltaf með í það minnst tvö kort með þér - til dæmis, Visa og Master Card. Vertu alltaf með símanúmerið hjá þjónustu og "neyðar" númerið hjá fyrirtækinu sem þú ert hjá. Því ef þú skyldir lenda í því að kortinu væri stolið. Ekki geyma símanúmerið á sama stað og kortin.
Vertu líka alltaf með einhverja Bandaríska dollara á þér. Þeim ættirðu ekki að eyða handahófskennt því þá geturðu notað ef allt annað fer úrskeiðis. Ef þú lendir í því að vera ekki með Kredit kort og ekkert reiðufé, þá geturðu fengið peninga sent rafrænt í gegnum þjónustu eins og Western Union. Það er mjög dýrt og í flestum tilvikum vond hugmynd en gott að nota sem seinasta úrræði.
Contact