Það er tiltölulega auðvelt að áætla þennan kostnað. Bólusetningarnar sem þú gætir þurft kosta mismunandi en má reikna með um það bil 275 evrur en betra er að hafa samband við næstu heilgæslustöð og fá meiri og ítari upplýsingar um það. Það eru til ýmsar tegundir malaríulyfja en má reikna með að þau kosta um það bil 3-4 evrur á dag. Góðir gönguskór, góður bakpoki sem hentar þér, svefnpoki og regngalli kosta um 650 evrur. Þannig með svona 900 evrur ættirðu að vera nokkuð góð/ur.
Kostnaður við flugmiða veltur algjörlega á því hvert þú vilt fara. Ef þú vilt aðeins ferðast um eina heimsálfu fyrir utan Evrópu, þá máttu búast við 75.000-180.000 kr. fyrir flugmiða. Ódýrustu heimsreisu flugmiðarnir eru á um það bil 200.000 - 250.000 kr. Auðvitað eru engin takmörk, því þú getur fengið ferð sem hæfir konungum með 5-8 stoppum á um það bil 300.000 - 450.000 kr.
Contact