Að ferðast einn er mikil áskorun. Þú sérð einn um alla skipulagningu og hefur engan stuðning ef eitthvað kemur uppá. Á hinn bóginn þá þarftu aldrei að gera málamiðlanir og frelsistilfinningin er algjör. Þar að auki kynnast margir sem ferðast einir fullt af nýju fólki því þeir "neyðast" til að vera opnari við ókunnuga en fólk sem ferðast saman. Margir sem ferðast einir ferðast alls ekki einir heldur eignast samferðafólk á ferðalaginu.
Það er engin ástæða fyrir því að þú sem kvenmaður getir ekki ferðast ein í bakpokaferð. Það eina sem þarf að hafa í huga eru venjur og siðir í því landi sem þú sækir heim. Á sumum stöðum er kona litin hornauga ef hún drekkur ein á bar, reykir opinberlega, farðar sig of mikið eða er helst til léttklædd. Því skaltu reyna að skera þig ekki of mikið úr til þess að forðast að ögra eða móðga fólkið í landinu. Það gildir að sjálfsögðu einnig um karlmenn. Það er bara að það finnast ekki margir staðir á jörðinni þar sem fólk myndi hnykla brýnnar yfir að sjá karlmann sitja einan við drykkju á bar.
Að ferðast með bakpoka heimshluta á milli með góðum vini er einstakt tækifæri og eitthvað sem maður ætti að íhuga áður en maður byrjar að stofna fjölskyldu. Þegar þú ferðast með öðrum þá deilið þið ábyrgð. Ef einn er í feimnari kantinum en góður að lesa á kort, getur annar sem er opnari spjallað við ókunnuga og spurst til vegar. Áhættan við að ferðast saman tveir og tveir í langan tíma er að vinskapurinn gæti endað þvingaður og sogið kraftinn úr ferðinni. Fleiri vinir sem ferðast saman eiga auðveldara með að "þola hvorn annan" en á móti kemur að erfiðara er að taka sameiginlegar ákvarðarnir. Því getur verið sniðugt að innan ferðarinnar væri búið að ákveða að það sé í lagi að taka sér nokkra daga pásu frá samverunni og hittast svo aftur endurnærður á nýjum stað. Ef vinir þínir geta eða vilja ekki ferðast með þér er alltaf möguleiki að leita eftir ferðafélögum með því að senda skilaboð á "wanted" spjallborðið hjá KILROY travels á Internetinu.
Kærustupar eru einn daginn ástfanginn uppfyrir haus og hinn daginn í hörkurifrildi. Þannig gengur það líka fyrir sig á ferðalaginu. En ef maður getur haldið jafnvæginu í áttina að kærleikanum, eru fallegar og skemmtilegar upplifanir í vændum. Til að tryggja meiri kærleika og minni rifrildi á ferðalaginu er alltaf gott að ræða hlutina til mergjar áður en lagt er af stað. Ákveðið ráðstöfunarfé (ef það er sameiginlegt er ráðlagt að skammta vasapening), ákveðið ábyrgðarhlutverk og ákveðið áætlunarleiðina í smáatriðum. Því minna sem hægt er að rífast um í sjálfri ferðinni, því skemmtilegri verður ferðin - því er alltaf betra að rífast áður en lagt er í hann.
Bakpokaferðalag eða heimsreisa með múttu! Það er eflaust einhver sem gerir það, en við myndum ekki mæla með því að öllu jöfnu. Hinsvegar getur verið huggulegt að fá heimsókn frá foreldrum eða fjölskyldu einhvers staðar á leiðinni. Það getur dregið úr heimþrá en einnig verið dekur, t.d. gæti verið að þú fengir að gista á hóteli í nokkra daga og fengið nokkrar góðar máltíðir.
Bakpokaferðalag með litlum börnum er ekki eitthvað sem við mælum með. Bakpokaferðalag er um að fara á örðuvísi staði á litlu ráðstöfunarféi og vera sveigjanleg/ur. Þau vilja mun frekar vera í kringum sundlaug, leika sér með leikföng og eyða tíma með mömmu og pabba - ekki mikið meira en það. Ef þú hins vegar verður að taka með þér lítið barn vertu þá viss um að hafa nóg af góðum pásum á hótelum og leyfðu barninu að njóta sín. Sniðugt er að taka með afþreyingu eins og tölvuleiki eða bíómyndir fyrir flug og ferðalög. Eldi börn (12 ára og eldri) eru mun líklegri til þess að geta notið þess að ferðast með þér í bakpokaferðalaginu.
Það þarf ekki endilega að skipuleggja ferðafélaga áður en lagt er í ferðina. Það eru nefnilega miklir möguleikar á því að þú hittir og eignist ferðafélaga á leiðinni. Veröldin er full af ferðamönnum sem eru opnir og spenntir í að kynnast öðru fólki í ferðinni. Hótel, rútur, farfuglaheimili og aðrir týpískir staðir þar sem bakpokaferðamenn koma saman eru upplagðir vettvangar til að eignast nýja alþjóðlega vini.
Önnur góð leið til að eignast samferðamann er að taka þátt í ævintýraferðum. Ferðirnar geta verið flúðasigling, safarí, gönguferðir/trekking til borgarferða og menningarupplifana og geta staðið yfir í einn dag upp í heilan mánuð.
Contact