Ævintýraferðir með litlum hópum eru fyrirfram pantaðar ferðir með enskumælandi leiðsögumanni og búið að sjá um öll praktísk atriði fyrir þig (ferðir, samgöngur milli staða, gisting og einhverjar máltíðir). Í þessum ferðum þá ferðast þú með öðrum ungum bakpokaferðalöngum, oftast í 10-15 manna hópum. Ævintýraferðin gæti til dæmis verið 14 daga ferð um Víetnam, vika í köfunarskóla í Tælandi, 3-4 vikna "road-trip" í Bandaríkjunum, 2 vikna safaríferð í Tansaníu eða 4 daga ganga um Inkaslóðina í Perú. Möguleikarnir eru endalausir.
Ef ævintýraferðir eru hluti af ferðinni þinni þá tryggir það betri upplifun og þér tekst betur að kynnast því landi sem þú ert að ferðast í gegnum. Á sama tíma undirbýr það þig til að ferðast á eigin spýtum. Margir ferðalangar eru svo ánægðir með þessar ferðir að þeir panta fleiri ævintýraferðir þegar líður á þeirra ferðalag. Ástæðan er sú að upplifunin og reynslan sem maður öðlast er einstök, andrúmsloftið er dásamlegt og seinast en alls ekki síst, þú eignast fullt af nýjum vinum.
KILROY travels starfar með bestu leiðsögumönnum heims og við bjóðum upp á fleiri en 1000 mismunandi ævintýraferðir um allan heim. Hafðu samband við ferðaráðgjafa okkar og hann getur sagt þér betur frá mismunandi ævintýraferðum og leiðbeint þér í því hvaða ævintýraferðir gætu hentað þér. Gott er að muna að það er alltaf ódýrast að panta ferðina fyrirfram að heimann.
Ef þú vilt kanna heiminn á þínum eigin vegum, þá verðurðu að skipuleggja fram í tímann og ákveða hvaða hluti þig langar að sjá, hvað þig langar að gera og hvað á almennt við þig. Flestir bakpokaferðalangar nýta öll tækifæri til hins ítrasta og fara á framandi slóðir, því þetta gæti verið þeirra fyrsta og seinasta alvöru ævintýri áður en þeir byrja að skuldbinda sig með lánum, vinnu eða fjölskyldulífi. Með öðrum orðum nú er rétti tíminn til að láta draumana verða að veruleika.
Contact