Hvenær á að fara

Hellirigning og flóð? Vertu viss um að kynna þér veðurfarið áður en þú leggur af stað.
Rigning í austri - sólskin í vestri! Jörðin er sem betur fer hnöttótt, sem meðal annars gerir það að verkum að á meðan á einum stað er hellirigning og kuldi þá er alltaf hægt að finna annan stað á jörðinni þar sem sólin skín og heitt er í veðri. Grundvallaratriðið er, að það er alltaf hægt að finna nákvæmlega það veður sem þú ert á höttunum eftir, einhvers staðar í heiminum.

Þá skiptur engu hvort að þú sért háður sjónum, snjónum eða sólinni, það er algjörlega lífsnauðsynlegt að vera meðvitaður um mismunandi árstíðir og plana ferð þína eftir þeim, allt gert til að fá sem mest útúr þínu uppáhalds iðju og það í bestu mögulegu aðstæðum.

Mundu eftir regntímabilinu

Á norðurhveli Jarðar er sumarið frá maí til október. Í suðri er það akkúrat öfugt - það er, frá nóvember til apríl. Á suðrænu svæðunum báðum megin miðbaugs skaltu reikna með regntímabilinu. Það er þó erfitt að skipuleggja sig út frá duttlungum náttúrunnar svo þú skalt vera viðbúinn mest öllu.

Spurðu ferðaráðgjafann

Á Indlandi og Suðaustur-Asíu er gífurlegur hiti og bleyta yfir sumarmánuðina en er virkilega góður áfangastaður til að ferðast til yfir vetrarmánuðina. Á sunnusta hluta jarðar eins og t.d. Nýja Sjálandi og Argentínu, getur verið mjög kalt yfir sumarmánuðina okkar. Á öðrum stöðum, eins og í Ástralíu og í Karabíska hafinu, er gott veður allan ársins hring. Ferðaráðgjafar okkar hjá KILROY eru alltaf til reiðu til að gefa góð ráð um mismunandi loftslag.

Ferðast yfir veturinn - Koma heim um sumar

Sumarið er tíminn - til að vera á Íslandi. Ef maður er ekki þeim mun meiri áhangandi skammdegis og tilheyrandi vetrardoða, þá er tilvalið fyrir Norðurlandamann að íhuga að skipuleggja ferðina þannig að hún byrji á haustmánuðum og vari yfir vetrarmánuðina. Þá er hægt að senda jólakort frá heitri suðrænni strönd til vinanna og fjölskyldunnar heima - öfundin heyrist alla leið yfir hnöttinn. Ímyndið ykkur það.

Góð þumalputtaregla er að byrja að skipuleggja ferðina sex til níu mánuðum áður en lagt er í hana, þótt það sé auðvitað hægt á skemmri tíma. Ef byrjað er nógu snemma gefst nægur tími til að koma öllum praktískum hlutum í lag. Þar að auki er stærri möguleiki á að fá ódýrari flugmiða og ævintýraferðir.

 

Contact Contact