Leyfðu foreldrum þínum að vera með þér í því að skipuleggja og undirbúa þig fyrir ferðina. Fáðu þeirra ráð og nýttu þér þau. Foreldrum líður vel ef þeim finnast þeir vera ómissandi.
Hverskonar vinnu þú ætlar að sækja um? Viltu safna pening fyrir ferð eða vinna á meðan henni stendur? Foreldrar sem finnast börnin þeirra vera vel skipulögð og dugleg eru einnig mun líklegri til opna veskið og hjálpa til fjárhagslega.
Hvort sem það er SMS, tölvupóstur, skype eða bara í venjulegu símasambandi. Þú gætir einnig verið með blogg eða (ef foreldrar þínir eru mjög old school) sent þeim bréf. Gerðu þó ráð fyrir sveigjaleika, svo að foreldrar þínir missa það ekki, því þú gætir lent í því að geta ómögulega verið í sambandi því þau á þeim tíma sem þið höfðuð fyrirfram ákveðið.
Þannig geta þau fylgst með því hvar þú ert hverju sinni. Mundu einnig að skanna eða taka afrit af öllum þínum mikilvægustu pappírum - passanum, visa, tryggingum o.s.frv. Í fyrsta lagi er alltaf góð hugmynd að hafa afrit af öllu og í öðru lagi þá fá foreldrar þínir þá tilfinningu að þú sért vel undirbúin/n (sem þú átt auðvitað að vera). Einnig ertu að gefa þeim hlutverk og þá finnst þeim eins og þau séu að vernda þig eða eigur þínar. Og þar sem við erum að tala um þetta þá mælum við með því að vera með afrit af öllum þínum skjölum á tölvupóstinum þínum og/eða USB.
Kilroy er með margra ára reynslu (staðreynd) í að senda ungt fólk eins og þig í bakpokaferðalag um allan heim. Við sérhæfum okkur í því að bjóða þér og vinum þínum bestu þjónustuna, bestu tilboðin, mesta öryggið sem völ er á um allan heim.
Ef foreldrar þínir eru með áhyggjur eða bara forvitnir bjóddu þeim þá endilega hitta á ferðarágjafa okkar og við skulum gera okkar besta að útskýra ferðina og róa þau niður. Ef ekkert að ofangreindu virkar þá er um að gera að gera þeim lífið leitt þar til að þau gefa eftir. Það hefur virkað áður og mun virka aftur!
Contact