Trukkaferðir

Með trukkaferðum erum við að tala um að ferðast yfir land (e. overland) á tryllitæki og upplifa ótrúleg ævintýri á leiðinni. Þú munt ferðast í stórum og breyttum trukk í góðum en fámennum hóp og farið er út af hinni týpísku slóð ferðalangans. Ferðast er yfir eyðimerkur, sléttur, fjöll og aðra magnaða staði. KILROY býður upp á trukkaferðir í flestum heimsálfum

Sumar ferðir taka nokkra daga, aðrar vikur og sumar jafnvel mánuði - enda er oft ferðast yfir heilu heimsálfurnar. Trukkaferð er eitt mesta ævintýri sem þú getur upplifað, en við viljum taka fram að þú átt ekki að búast við að gista á 5 stjörnu hótelum og slaka á allan daginn. Hér er krafist af þér að taka þátt og hjálpa til. Með því er m.a. átt við að elda eða moka sand ef trukkurinn festist. Trukkaferðir eru hið fullkomna ævintýri og þú munt fá að kanna staði sem aðrir ferðalangar fá almennt ekki að sjá né upplifa. 

Per síðu
Fyrsta  1 2 3 4  ...  Seinasta 
Per síðu
Fyrsta  1 2 3 4  ...  Seinasta 
Contact Contact