Flugmiðar fyrir ungt fólk og námsmenn

Flugmiðar fyrir ungt fólk og námsmenn

Við bjóðum upp á sérstaka KILROY flugmiða fyrir ungt fólk og námsmenn* með helstu flugfélögum heims. Þeir eru ódýrir, sveigjanlegir og þar af leiðandi fullkomnir fyrir fólk í námi, starfsnámi eða á lengri ferðalögum. 

Það mikilvægasta að vita um þessa tegund flugmiða er að þeir eru oftar ódýrari en hinu týpísku flugmiðar en fela samt sem áður í sér sömu skilyrði og ávinninga. KILROY flugmiðarnir henta vel þegar setja á saman nokkra flugmiða því þeir eru ekki háðir jafn ströngum reglum og hinir venjulegu flugmiðar. 

Nokkrir af ávinningum KILROY flugmiðans: 


• Sveigjanleiki til þess að breyta ferðadagsetningum
• Gildir í 12 mánuði eða jafnvel lengur
• Ódýr eða frí millilandalending í flugrútínunni þinni
• Ódýrari flugmiðar ef ferðast er aðeins aðra leið 
• Betri samsetning á flugmiðum

Bókaðu á netinu

KILROY flugmiða fyrir ungt fólk og námsmenn er nú hægt að bóka á netinu, en þó aðeins miða sem fer báðar eða aðra leið. Ef þú ert að leita eftir samsettum miðum fyrir lengri ferðalag, heimsreisu eða annarskonar ferðalag þá biðjum við þig að hafa samband við ferðráðgjafa okkar

Nýttu millilandaflugið

Þú getur snúið leiðinlegri millilendingu (sem þýðir oftast dýr matur, óþægileg sæti og bakverkir) upp í skemmtilega upplifun! Með KILROY flugmiðanum geturðu framlengt millilendinguna og fengið nokkurra daga, eða jafnvel nokkurra vikna, stopp á spennandi áfangastað. Það besta er að það kostar þig ekkert aukalega! Vinsælir staðir til að taka langa millilendingu á eru t.d. Tæland, Hong Kong, Singapore, Miami og New York. Þetta er ekki hægt að bóka á netinu og því mælum við með að þú hafir samband við ferðaráðgjafa KILROY.

(*ungt fólk yngri en 25 ára og námsmenn í fullu námi allt að 33 ára aldri).  

Contact Contact