Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
✈️Heim - Evrópa (þú velur landið) - Dubaí - Maldíveyjar - Sri Lanka - Singapore // Kuala Lumpur - Dubaí - Evrópa (þú velur landið) - Heim
// = ferðast landleiðis á eigin vegum eða í skipulagðri ferð
Ath: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.
Ferðin hefst í hinn mögnuðu stórborg í eyðimörkinni, Dubai. Þar finnur þú mikið af ríku fólki, ótrúlega skýjakljúfa og fullt af sandi. Farðu í eyðimerkursafarí á kameldýri, heimsæktu hæstu byggingu heims og upplifðu einstaka matarmenningu.
Maldíveyjar er sannkölluð paradís og ekki að ástæðulausu! Hvítar strendur, kristaltær sjór, pálmatré sem vaggast rólega í vindinum og ekki má gleyma að þar rignir næstum aldrei og hitastigið er í kringum 30°C allt árið um kring. Nýttu tækifærið og finndu þinn innri styrk í einstöku umhverfi og ef þú ert ekki komin með köfunarprófið þá mælum við með því að læra að kafa á Maldíveyjum.
Sri Lanka er dásamleg eyja í Suðaustur-Asíu. Hér finnur þú magnaða surfstaði og ef þú hefur enga reynslu er tilvalið að skella sér í surfskóla. Að auki verður þú að fara í magnað safarí og fylgjast með fílahjörðunum í Yala þjóðgarðinum, skoða hofin og fossana í Ella og upplifa magnað útsýni á World´s End.
Singapore hefur allt sem stórborg á að hafa. Ódýr raftæki, skemmtilega fjölmenningu og fullt af frábærum veitingastöðum og götumörkuðum. Bestu matarupplifunina færð þú með því að fara á veitingastaðina þar sem heimamennirnir borða - og mundu, því fleiri heimamenn, því betri matur!
Flestir sem heimsækja Kuala Lumpur verða strax ástfangnir af borginni. Þessi asíska stórborg býður upp á allt sem þarf fyrir vel heppnað frí. Þar finnur þú söguleg hof, framandi markaði og menningarupplifanir en jafnframt hefur borgin nútímalegar verslunarmiðstöðvar, skilvirkar samgöngur auk þess sem hún er góður upphafspunktur á ferðalagi til annarra áfangastaða í Malasíu.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.