Ef þig dreymir um að fara í ferðalag í óákveðinn tíma en finnur
engan til að ferðast með, þá ættiru ekki að hætta við. Fullt af
bakpokaferðalöngum ferðast einir og ef þú ákveður að slá til þá
gæti það komið þér skemmtilega á óvart hversu margir kostir fylgja
því.
Flest allir þeir sem ferðast einir hitta og kynnast fleira fólki
en þeir sem ferðast með öðrum. Þeir sem ferðast einir eiga líka
(skrítið en satt) auðvelt með að spotta aðra sem ferðast einir.
Þegar þú ferðast ein(n) þá geturu þú líka alltaf gert það sem þú
vilt. Ef þú vilt fara seint að sofa og vakna upp úr hádeigi, ef þú
vilt vera auka dag á einhverum áfangastað og ef þú vilt stoppa og
vinna á einhverjum áfangastað þá gerir þú það. Þú ræður.
Það að ferðast einn er þó ekki alltaf auðvelt. Þú ættir að
undirbúa þig undir það andlega að lenda ...
Lesa meira