Við erum í samstarfi með 3 mismunandi sjálfboðastörfum í Tansaníu. Reyndar eru verkefnin öll á fallegu eyjunni Zanzibar en ekki meginlandi Tansaníu, en það gerir upplifunina bara enn betri!
Hvers vegna ættir þú að velja að fara í sjálfboðastarf á Zanzibar?
Í fyrsta lagi færðu einstakt tækifæri til að vera hluti af nærsamfélaginu á framandi stað í Afríku. Zanzibar er frábær blanda af menningu og hinu fullkomna strandfrí. Með því að taka þátt í einu af verkefnunum muntu ekki aðeins geta hitt aðra sjálfboðaliða alls staðar að úr heiminum og gefið til baka til samfélagsins, heldur munt þú líklegast kynnast nýjum hliðum á sjálfum/sjálfri þér og fá nýt viðhorf á lífið.
Hvaða verkefni ætti ég að velja?
Hér er best að hafa samband við okkur svo við getum veitt þér persónulega ráðgjöf. Í fyrsta lagi til að komast að því hvort sjálfboðastarf sé eitthvað fyrir þig og í öðru lagi til að komast að því hvaða verkefni þú átt að velja. Við erum í samstarfi með virkilega flottum verkefnum á Zanzibar. Smelltu á appelsínugula hnappinn hér að neðan til að hafa samband.
Hafa samband