{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
paris-france-souvenir-tour-eiffel-keychain-cover
paris-france-arc-de-triomphe-sunset-cars-sidebar

París – Rómantík, listir og tíska

París er borg sem mun heilla alla. Þar er að finna mikla listar- og matarmenningu. Njóttu þess að rölta um borgina, fylgjast með mannlífinu og setjast í garðinn með franskt vín og osta til að narta í. Svo má auðvitað ekki láta helstu kennileiti borgarinnar framhjá sér fara.

Fá fría ráðgjöf

Hvað á ég að skoða í París?

Eiffel turninn, já þú verur að heimsækja hann. Hann er kannski svolítið umtalaður en þú átt ekki eftir að verða fyrir vonbrigðum. Sjáðu muninn á honum að degi til og síðan að kvöldi til. Það getur oft verið löng röð að fara upp svo ef þú hefur ekki þolinmæði í að bíða í kílómetra langri röð mælum við með því að þú farir efst upp á Tour Mont Parnasse sem er gríðarstór skrifstofubygging og skoðir hið einstaka útsýni þaðan.

Le Louvre safnið má ekki missa af! Hafðu þó í huga Mona Lisa er líklega mun minni en þú áætlaðir og gæti verið erfitt að sjá hana í gegnum alla hina ferðamennina. Safnið er mjög stórt svo vertu búin/n að skipuleggja þig!

Farðu í gönguferð, eftir inniveruna í Le Louvre safninu, um latneska hverfið (latin quarter) en þar eru yndislegar byggingar, veitingastaðir, gallerí og skemmtilegar litar sérvöruverslanir. Mundu að stoppa á einu kaffihúsinu og njóta mannlífsins. Annað sem þú verður að sjá er Sigurboginn, Charles du Gaulle torgið og Notre Dame á Pervais du Scré Coeur. Þá er einnig hægt að fara í siglingu um Signu þar sem þú getur séð nokkrar af helstu byggingu frá öðru sjónarhorni.

Ef þig lagnar að komast út úr borginni og mannmergðinni þá er tilvalið fyrir þig að leigja bíl og keyra út á landsbyggðina. Hafðu þó í huga að umferðin getur verið mikil og frakkar eiga það til að keyra eins og þeir séu nýbúnir að stela bílnum. Nýttu um leið tækifærið og farðu á eina vínekruna í smá skoðun og smakk, stoppaðu við lítinn og notalegan veitingastað og njóttu andrúmsloftsins. Þú munt elska það!

Fá meiri upplýsingar

Versla, versla og versla!

Það getur verið erfitt fyrir þig að fara til Parísar án þess að versla eitthvað, borgin er nú einu sinni höfuðborg tískunnar! Það góða er samt að allir ættu að geta fundið eitthvað fyrir sig.

Hvort sem þú hefur efnið á því eða ekki verður þú að kíkja inn í Louis Vuitton verslunina á 101 Avenue Des Champs-Élysées. Verslunin er sjö hæða paradís! Þar finnur þú vörur allt frá hátísku til ferðabókmennta. Gaman er einnig að ganga um Triangle d´or svæðið en þar finnur þú öll stóru tískuhúsin eins og Dior, Prada og YSL.

Tómur magi?

Ef veðrið er gott er góð hugmynd fyrir þig að kaupa baguette, Brie ost og góða rauðvínsflösku, pakka þessu öllu í körfu og fara í lautarferð í einhverjum af hinum dásamlegu görðum sem finnast í París. Við mælum með görðunum í kringum Sactré Coeur. Það verður ekki erfitt fyrir þig að finna góðan mat í París því frakkar eiga almennt í miklu ástríðusambandi við mat og á öllum veitingastöðum er áhersla á góðan mat.

Að ferðast um í París?

Mjög auðvelt er fyrir þig að ferðast um borgina. Neðanlestarkerfið í París (Lé Métro) er eitt það stærsta í heiminum og finnur þú stöðvar á öðru hverju götuhorni. Athugaðu að París er stór borg og eru byggð þannig að um 20 mismunandi hverfi sem raðast í spíral út frá hverfi 1.

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í París

Eiffel turninn og Le Louvre safnið eru auðvitað ómissandi í ferð þinni til Parísar. í góðu veðri er frábært að pakka baquette, osti og rauðvíni í tösku og fara í lautarferð í hinum dásamlegu görðum Parísar.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Parísar

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreyingar í París

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.