{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
melbourne-city-view-cover
australia-melbourne-hosier-lane-street-art

Melbourne

Melbourne, höfuðborg Victoria fylkis er frábær áfangastaður fyrir ferðamenn sem hafa áhuga á menningu, víni, góðum mat og tónlist. Þar eru margar árlegar hátíðir af ýmsu tagi. Nokkrar af þeim stærri eru Big Day Out (janúar), Moomba Waterfestival (mars), Melbourne International Food & Wine Festival (mars), Melbourne International Film Festival (júlí/ágúst) og Melbourne Cup Carnival (nóvember). Auk þessa eru haldnir ýmsir alþjóðlegir íþróttaviðburðir í Melbourne, t.d. Australian Open (tennis, janúar), Grand Prix (formúla, mars), AFL Grand Final (ástralskur fótbolti, september) og Melbourne Cup (veðhlaupahestar, nóvember).

Fá fría ráðgjöf

Týndi fjarsjóður borgarinnar

Hliðargötur Melbourne eru hinn týndi fjársjóður borgarinnar, kíktu á hina heillandi Hardware Lane (á milli Bourke og Little Bourke St) en þar eru útiveitingastaðir í röðum. Þar er hægt að eiga kósý kvöldstund, borða góðan mat og hlusta á götulistamenn flytja djass. Önnur frábær hliðargata er Bank PI þar sem þú upplifir þig sjálfsagt eins og þú hafir gengið inn til Evrópu þegar þú sérð gamaldags byggingarnar og götumyndina.

Úthverfi Melbourne

Úthverfi Melbourne heilla öll, hvert á sinn einstaka hátt. St Kilda (15 mínútur með sporvagni frá miðborginni) er í miklu uppáhaldi meðal bakpokaferðalanga. Þar eru gullnar sandstrendur, pálmatré, flottir barir, þekkt gistiheimili, afslappað andrúmsloft og spennandi viðburðir allt árið um kring.

Port Melbourne (5-10 mínútur með sporvagni frá miðborginni) er nýtískulegt og töff hverfi í efri klassa. Þar munt þú sjá flotta Lambourghini bíla rúlla hægt niður göturnar við hlið glansandi Porche bifreiða. Í hinu vinsæla hverfi Richmond er Chapel Street (5-10 mínútur með sporvagni frá miðborginni) og þar er hægt að ganga á milli alþjóðlegra tískuvöruverslana og fara á litríka markaði, fá sér fullkominn cappuccino á götukaffihúsi.

Umhverfis Melbourne

Þegar þú hefur fengið nóg af stórborgarlífinu er gott að vita að rétt utan við borgarmörkin eru ferðamenn komnir í náttúruparadís Victoria. Great Ocean Road tekur ferðamenn meðfram fallegu suðvesturströndinni fram hjá kalksteinaklettum og í gegnum lítil þorp. Þessi leið er fullkomin ef þú ert með bílaleigubíl. Hinum megin við Port Philip Bay er Mornington Peninsula sem býður upp á æðislegar vínekrur, gullnar strendur og þar er hin vinsæla Philip Island.

Matur og næturlífið í Melbourne

Hvort sem það er til að fá sér latte og beyglu með osti eða skella sér á átta rétta kvöldmáltíð í heimsklassa og fá sér áströlsk vín með. Borgin hefur gríðarmikið úrval af kaffihúsum, veitingahúsum og litlum matsölustöðum sem leynast í hverri hliðargötu og á stærri svæðum og eru gæðin á heimsklassa. Auk alls þessa áttu eftir að hrífast enn meira af Melbourne þegar þú uppgötvar hversu mikið innfæddir elska eigin borg og það sem hún býður upp á! Finna má flotta bari og klúbba, alls staðar í Melbourne, þar sem þú getur dansað fram á rauða nótt eða fengið þér nokkra kalda og rætt ástralskar íþróttir við innfædda (góð leið til að eignast vini, en vertu viss um að þú vitir hvað þú ert að tala um!)

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Melbourne

Við mælum með að kíkja á Hardware Lane og fá þér dýrindis mat á einum af þeim fjölmörgu veitingahúsum sem þar er að finna. Úthverfi Melbourne eru einnig skemmtileg og heimsóknarinnar virði; St Kilda, Port Melbourne og Richmond.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Melbourne

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreyingar í Melbourne

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.