Með komupakka Wake Up í Sydney færð þú frábæra byrjun á ævintýri þínu í Ástralíu. Eftir langt flug er frábært að þurfa ekki að byrja á því að finna gistingu og faramáta. Með komupakka okkar færð þú akstur frá flugvellinum að Wake Up sem er staðsett á „The Block” í hjarta Sydney. „The Block” er þekkt svæði í Sydney fyrir gríðarlegan fjölda gististaða sem þýðir að á þessu svæði eru bakpokaferðalangar, alls staðar að úr heiminum, allt árið um kring.
Staðsetningin er frábær en frá Wake Up hostelinu ert þú í um fimm mínútna göngufjarlægð frá Kínahverfinu, aðallestarstöðinni og Paddy’s Markets og í um 10 mínútna göngufjarlægð frá Darling Harbour. Að auki tekur það þig ekki nema nokkrar mínútur, með strætó, að heimsækja óperu húsið, Sydney Harbour og Bondi ströndinni.
Wake Up er hostel fyrir bakpokaferðalanga. Það er nýlegt, hefur frábæra aðstöðu og fjölbreytt herbergi. Hvort sem þú ert að leita að ódýrri gistingu eða svolítið meiri lúxus þá finnur þú hana á Wake Up. Þú getur bókað einkaherbergi, með eða án baðherbergis, eða dorm herbergi, frá fjögurra til tíu manna. Það er u.þ.b. ein sturta á hverja sex gesti.
Aðstaðan á Wake Up er mjög góð en þar getur þú þvegið þvott, farið á netið, slakað á fyrir framan sjónvarpið, eldað mat, tekið út pening og bókað fjölbreyttar ævintýraferðir um alla Ástralíu. Og það besta er að stemningin á hostelinu er almennt skemmtileg og afslöppuð.
Mikil áhersla er lögð á öryggi og er móttakan opin allan sólarhringinn. Starfsfólkið er alltaf tilbúið til að aðstoða þig hvort sem það er dagur eða nótt. Að auki býður Wake Up upp á fríar skoðunarferðir um Sydney tvisvar í viku.
Wake Up hostelið er staðsett rétt hjá hinum fræga „Side Bar” en þangað mæta bakpokaferðalangar, alls staðar að úr heiminum, til að borða, drekka og skemmta sér. Á hverju kvöldi er eitthvað um að vera og hver veit nema þú hittir næsta ferðafélaga hér.