Borgin er morandi í háskólanemum sem koma allstaðar að úr heiminum til að stunda nám við Universidad de Costa Rica háskólann. Heimamenn eru vinalegir, gestrisnir og hjálpsamir þegar þörf er á.
Að versla í San Jose
Það er furðu gott að versla í San Jose, sérstaklega ef þú hefur áhuga á brimbrettum eða hjólabrettum. Borgin er stútfull af surf-, skate- og street klæðnaði og þú getur fundið merki eins og Volcom, DC og Globe á frábæru verði.
Veitingar í San Jose
Miðbærinn býður upp á allt sem þú þarft: götumarkaði, kaffihús, pöbba og alþjóðlegar kaffihúsa- og veitingahúsakeðjur. Vinsælasti markaðurinn er El Mercado Sentral sem liggur í miðri borginni, en þar finnur þú ferskustu og gómsætustu framandi ávextina, ferskt kjöt og fisk. Markaðurinn er troðinn og hávær að Kosta Ríkönskum sið en andrúmsloftið er líflegt og skemmtilegt. Ef þig langar í enn meira úrval, þá er El Pueblo lítil borg þar sem finna má meira en 50 bari, veitingastaði, listagallerí og verslanir. Þar er stundum svolítið túristalegt og ef þú fílar það ekki þá skaltu taka stefnuna á háskólasvæði San Pedro, á götuna Calle de la Amargura. En passaðu uppá eigurnar þínar, þar er nokkuð um vasaþjófa.
Samgöngur í San Jose
Það besta við San Jose í Kosta Ríka er hvað það er auðvelt að komast leiðar sinnar hér, jafnvel þótt maður kunni enga spænsku. Það eru engar strendur við San Jose en bæði Karabíska- og Kyrrahafið eru hvort fyrir sig bara 3 klst rútuferð í burtu. Það eru frábærar strendur við bæði höfin en ef þú ert fyrir brimbretti er betra að stefna á Kyrrahafið, þar eru öldurnar rosalegar! Það er úr svo mörgum frábærum stöðum að velja, passaðu bara að þú farir upp í rétta rútu.
San Jose skiptist í mismunandi svæði og merkilegt er að þú munt ekki finna nein venjuleg heimilisföng neinstaðar í Kosta Ríka! Vinsælasta svæðið í miðbænum heitir Avenida 1 og númerin hækka almennt eftir því sem lengra er komið út úr miðbænum. Hús og byggingar eru yfirleitt lágreist og skreytt í skærustu litum.