{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

10 ráð fyrir bakpokaferðalanga

sunset-camping-couple-planning-iytc-card-cover

10 góð ráð fyrir bakpokaferðalanga

Hvert ætti ég að fara? Hvenær ætti ég að fara? Hvað kostar heimsreisa? Hvað ætti ég að taka með? Hvað þarf ég að gera áður en ég legg af stað? Mjög algengt er að þessar spurningar komi upp þegar þú byrjar að skipuleggja heimsreisuna. Það er margt sem þarf að skipuleggja og muna eftir. Hér fyrir neðan finnur þú nokkur góð ráð frá ferðaráðgjöfum okkar en þeir hafa allir gríðarlega ferðareynslu. 

1. Kostnaðurinn er oft aðeins meiri en þú gerðir ráð fyrir

Fólk að skipuleggja heimsreisu með því að skoða kort

Þegar þú hefur greitt fyrir flugmiðana, bólusetningarnar og allar skipulögðu ævintýraferðirnar líður þér eins og stærstu útgjöldin séu búin - og það er alveg rétt! En mundu að þú átt eftir að fara í ferðalagið og samkvæmt ráðgjöfum okkar enda flestir á því að eyða aðeins meira en var áætlað. Helsta ástæðan fyrir því er sú að oft koma upp hlutir sem þig langar ekki að sleppa en hafðir ekki gert ráð fyrir eins og að læra að kafa á Balí eða fara í fallhlífarstökk á Nýja Sjálandi. Mundu eftir því að eiga smá auka pening. 

2. Taktu breytingum með opnum hug

Maður á flugvellinum að skoða hvert hann er að fara

Þú ert að öllum líkindum búin/n að ákveða nokkurn veginn hvert þú vilt fara og hvað þig langar að upplifa. Hins vegar verður þú að muna að það geta komið upp breytingar á ferðaplaninu eins og að vegir voru lokaðir eða það kom vont veður. Hér mælum við með því að taka þessum breytingum með opnum hug en reynslan er að í þessum tilfellum verða oft til dýrmætustu minningarnar.

3. Farðu nokkrum sinnum yfir farangurinn!

Bakpokaferðalangur að pakka í bakpoka

Þú ert búin/n að pakka og allt er klárt! Athugaðu samt að þú hefur mjög líklega pakkað einhverju sem þú hefur enga þörf fyrir og á eftir að verða pirrandi að bera um allan heim. Gerðu sjálfum þér þann greiða að þegar þú heldur að þú sért búin/n að pakka að taka allt upp aftur og endurpakka nokkrum sinnum. Ekki taka með 5 peysur!

4. Alls ekki gleyma höfuðljósinu!

Bakpoki á bekk í frumskóginum

Það getur verið að höfuðljós sé ekki mjög smekklegt en sem bakpokaferðalangur átt þú eftir að lenda í aðstæðum þar sem það er nauðsynlegt. Fjárfestu í einu góðu og slepptu við það að stíga á kakkalakka í myrkrinu. 

5. Rafmagn og meira rafmagn

Sími í hleðslu við hleðslubanka

Í dag þurfum við ætíð að hlaða öll okkar tæki og tól og eins og þú veist geta innstungur verið mjög mismunandi á milli landa. Ekki vera með mörg mismunandi millistykki heldur fjárfestu í einum worldwide travel adapter!

6. Ætlar þú að fara í road trip á ferðalaginu?

Fætur ofan á bílþaki

Ætlar þú að fara í road trip á bíl eða húsbíl? Þá er snilld að vera með kælitösku sem þú getur tengt við rafmagnið í bílnum (mundu bara að kaupa hana rétt áður - ekki ferðast með hana að heiman). Þannig getur þú sparað pening og alltaf átt kalda drykki.

7. Þarf að endurstaðfesta flug?

Bakpokaferðalangur stendur undir flugvél sem er að taka af stað

Þegar þú ert farin/n af stað í ferðalagið og nýtur lífsins á einstakri strönd þá ertu ekkert endilega að huga að næsta flugi. Við mælum því með að þú kannir áður en þú leggur af stað reglur flugfélaganna og hvort þú þurfir að endurstaðfesta einhver flug og þá hvenær. Mundu einnig eftir því að kíkja alltaf í spam síuna og ruslpóstinn - það getur verið mjög leiðinlegt að missa af upplýsingum varðandi breyttan flugtíma. 

8. Flip-flops

maður í flip flops

Vertu með flip flops á ferðalaginu - hvort sem þú ert að ferðast í heitu loftslagi eða ekki. Það er mun skemmtilegra að fara í sturtu í flip flops en að standa í hárum og sápuleifum þeirra sem voru á undan þér.

9. Vertu með handspritt og þurrkur

kona með grímu

Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt og núna að vera með spritt með þér. Þú átt eftir að uppgötva að það er ekki á öllum stöðum rennandi vatn, sápa og klósettpappír á salernum. Það er því nauðsynlegt að vera með handspritt og þurrkur meðferðis!

10. Ferðatryggingar - ekki gleyma þeim!

Bakpokaferðalangar í Japan

Við erum að lokum öll sammála um að það er mjög mikilvægt er að vera með góða sjúkratryggingar. Mundu að bláa EU sjúkrakortið gildir ekki þegar þú ferðast út fyrir Evrópu og tryggingar á kreditkortum gilda oft aðeins í þrjá mánuði. Það eru ótrúlegustu hlutir sem þú getur lent í eins og að hrasa um eina steininn á ströndinni. Fjárfestu í góðum tryggingum!

Ef þig langar að byrja að skipuleggja næsta ævintýrið þitt, sama hvenær þú vilt fara í það, þá skaltu skrifa okkur og fá fría ferðaráðgjöf. HÉR fyrir finnur þú fleiri ferðaráð.

Fá fría ferðaráðgjöf

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.