Egyptaland

Úlfaldi og pýramidar
 

Ferðir til Egyptalands - Sandur, vatn og pýramídar.

Egyptaland er mun meira en sandríkar eyðimerkur og heimsfrægu pýramídarnir. Þar hefur þú sem dæmi möguleika á að kafa í Rauða hafinu og sigla á lengstu á í heiminum, Níl. Bókaðu ferð til Egyptalands með KILROY!

Helsta aðdráttarafl Egyptalands: Pýramídarnir

Eitt það helsta og merkasta sem er að sjá í Egyptalandi er að sjálfsögðu heimsfrægu pýramídarnir. Þessi risastóru grafhýsi eru eitt mest ljósmyndaða aðdráttarafl í heiminum en þeir eru að sjálfsögðu verndaðir af UNESCO's World Heritage. Þessi miklu verk eru staðsett á Giza, aðeins 20 kílómetrum frá höfuðborg Egyptalands, Kaíró. Þú getur gert þó mun meira en aðeins horfa og taka myndir t.d heimsótt greftrunarhólfin eða riðið á úlfalda um svæðið. 

Einn risastór sandkassi: Sahara

Ef þú ferðast til þessa heillandi heimshluta þá getum við lofað þér að nóg á eftir að vera af sandi, enda er Sahara stærsta eyðimörk í heimi. Það er nóg af skemmtilegum hlutum að gera: Þú getur farið í reiðtúr á úlfalda eða á hestbak, jeppasafarí, sandboarding, sofið undir stjörnubjörtum himni eða mögulega finna paradís, umlukta döðlutrjám. 

Frá sandi til vatns: Sharm el-Sheikh

Þegar þú ert búinn að fá nóg af öllum þessum sandi, mælum við með því að þú haldir ferðinni um Egyptaland áfram í gegnum Sinai til Sharm el-Sheikh, en það er einn af bestu köfunarstöðum í heiminum. Hér getur þú synt í kristaltæru vatni með fiskum og litríkum kóralrifum í Rauðahafinu. Staðurinn hentar mjög vel fyrir þá sem vilja kafa en einnig fyrir þá sem láta sér nægja að snorkla. Einnig mælum við með Dahab, en það er gamall fiskibær 80 km norðaustur af Sharm el-Sheikh og er fullkominn staður til að kafa á - þar finnur meðal annars bláu holuna en það er heimsþekktur köfunarstaður. Ef köfun hentar þér ekki þá er nóg af öðru að taka. Þú getur t.d. lært að surfa, lært magadans við varðeld eða sofnað í alvöru Bedouin tjaldi. 

Alexandría, egypsk perla

Þú gætir einnig heimsótt næststærstu borg Egyptalands, Alexandríu, en hún liggur upp að Miðjarðarhafinu og þar er að finna fullt af góðum hótelum og nóg af skemmtilegum hlutum að skoða og gera. Síðast en ekki síst mælum við með því að fara í siglingu á lengstu á í heiminum, Níl. Þú ættir að verða nokkuð hissa á hversu mikið líf er á bökkum árinnar. 

Verslun og skoðunarferðir: Kaíró

Egypska höfuðborgin Kaíró, er ein af stærstu borgum heims ef miðað er við íbúafjölda (næstum 18 milljónir) – a.m.k. sú stærsta í Afríku. Hér gæti þér liðið eins og síld í tunnu því nóg er af fólki og mörkuðum. Farðu og skoðaðu markaðinn el-Khalili, sem daglega laðar að sér þúsundir kaupmanna og nóg af ferðamönnum. Hér getur þú keypt úlfalda og kindur - en einnig minjagripi, sjöl, peysur og handverk af ýmsu tagi. 

Ummæli
blog comments powered by Disqus
Contact Contact