Namibía
Ef þú vilt ferðast til Afríku í þeim tilgangi að sjá fjölbreytt dýralíf og merkisstaði skaltu endilega ferðast til Namibíu. Namibía er eitt af fallegustu löndum Afríku og hér finnurðu mikið dýralíf og ólýsanlega fallegt landslag. Ferðastu með KILROY travels til Namibíu!
Namibía er staðsett í suðurhluta Afríku og er eitt af fallegustu löndum þessa heimshluta. Landið er næstum tvöfalt stærra en Svíþjóð en hér er fólksfjöldi aðeins um 2 milljónir. Því er stór hluti Namibíu ónýtt landssvæði þar sem allskyns dýr búa og bíða þess að vera uppgötvuð og skoðuð.
Viltu fá það besta útúr ferðinni þinni? Í Namibíu eru góðir möguleikar á að blanda saman náttúru- og menningar upplifunum á ferðalaginu. Heimsæktu Himba Tribe og San Tribe ættflokkanna og upplifðu hvernig þessir ættflokkar lifa í dag og hafa gert nákvæmlega eins í þúsund ár.
Næstu nágrannalönd við Namibíu eru Suður-Afríka, Botsvana og Angóla og meðfram strandlengjunni er Namib eyðimörkin. Til austurs liggur hin fræga Kalahari eyðimörk og á milli þessa tveggja er hin sögufræga borg Windhoek staðsett. Landið býr að miklum náttúruauðlindum svo sem demantar, kopar, silfur og gull. Ástæða margra innrása inn í Namibíu í gegnum tíðina er einmitt sökum þessara auðlinda. Landið var áður fyrr suður-afrísk og þýsk nýlenda, og er enn hægt að greina áhrif frá tímum Þjóðverja. Þrátt fyrir að enska sé aðal tungumálið þá geturðu heyrt fólk tala þýsku og bera sum strætin enn þýsk nöfn. Í bæjunum Luderitz og Seakopmund sjást þessi áhrif enn þann dag í dag í matseldinni.
Ef þig hefur lengi langað til að sjá ljón, fíla, hýenur, sjakala, nashyrninga, villigelti eða gasellur með eigin augum þér ertu komin/n á rétta staðinn! Etosha þjóðgarður er einn af flottustu safari þjóðgörðum heims og hér er dýralífið afar fjölbreytt og spennandi. Hið suðræna Waterberg Plateau Park með öllum sínum háu trjám og grösugu sléttum er rétti staðurinn ef þú vilt sjá afrískan buffalo, giraffe, antilópur, pardusdýr og fleiri flott dýr.
Ímyndaðu þér spennuna við að keyra í gegnum hitabeltisgresjur umkringdur stórkostlegu landslagi og sjá svo hrikalegustu dýr jarðar rétt fyrir utan bílgluggann. Þar sem dýralífið er Namibíu er svona stórkostlegt þá mælum við hjá KILROY með að þú skellir þér í safaríferð með leiðsögn. Í þessum ferðum fræða reyndir leiðsögumenn þig um dýrin og allt sem fyrir augum ber. Þú getur valið á milli þess að fara í morgunsafarí, nætursafarí eða ef þú þorir, safarí á tveimur jafnfljótum
Alveg magnað fyrirbæri er Skeleton ströndin þar sem eyðimörk og haf mætast. Hér skaltu horfa yfir rauðu sandhóla Namib eyðimerkurinnar, ein elsta eyðimörk í heimi, eða jafnvel slaka á við stórkostlegu sandstrendur Cape Cross flóans. Ef það er saga landsins sem heillar þá er um að gera að ferðast til Twyfelfontein í Damaralandi þar sem hægt er að sjá ævafornan útskurð greiptan í stein.
Namibía býður uppá margt annað spennandi, svo sem fallhlífastökk, sandbretti, fjórhjól, bátsferðir og neðansjávarköfnun. Eitt sem alls ekki má láta framhjá sér fara í ferð um Namibíu er Fish River Canyon gljúfrið. Gljúfrið er það næststærsta í heimi á eftir Grand Canyon í Bandaríkjunum. Þú getur einnig skoðað Epupa fossana eða farið í gönguferðir um hina gríðarstóru Sossuluslei sandhóla.
Namibía býður uppá margt fleira en frábært landslag og dýralíf. Í Namibíu eru margar skemmtilegar borgir. Í höfuðborginni Windhoek geturðu rölt um og skoðað sögufrægar byggingar, verslanir og notalega bari og veitingastaði, þegar allt þetta blandast við hljóðin og litina skapast þægileg afrísk stemmning. Hin vinsæla borg Swakopmund liggur við norðvestur strönd Namibíu. Borgin er sú næst stærsta og hér blandast saman mismunandi menning saman, bæði gömul og ný. Hér er milt og þægilegt loftslag, görðum er vel við haldið og pálmatré mörg. Hér koma margir ferðamenn og njóta þess að vera í þægilegu loftslagi með heimamönnum. Hafnarbærinn Walvis Bay og höfnin Sandwich Harbour hafa uppá að bjóða tvo merkisstaði. Náttúrulónið við Walvis flóa og mikilvægustu votlendi landsins.
Namibía er þurrt og heitt land. Fyrir utan regntímabilið þá eru þurru tímabilin mjög löng. Því er vatn oft af skornum skammti. Falleg landssvæði eru mörg og í suðri finnurðu allt annað landslag en annar staðar í landinu. Regnskógar, votlendi og gróskumikil svæði, allt þetta og meira til! Besti ferðatíminn er yfir þurru tímabilið sem er yfir mánuðina apríl-maí og október-nóvember þegar hitasig er sem þægilegast.
Contact