{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
borneo-turtles-beach-cover
borneo-rainforest-sidebar

Borneo

Langar þig að heimsækja stað þar sem ekki eru margir aðrir ferðamenn? Þá ættir þú að heimsækja Kalimantan - indónesíski hluti Borneo. Kalimantan er um það bil 3/4 af Borneo og mun minna heimsóttur af ferðamönnum en malasíski hlutinn.

Í Kalimantan átt þú eftir að fá tækifæri til að upplifa einstaka menningu og gestrisni heimamanna. Heimsæktu litlu þorpin! Mundu samt að þar sem heimamenn tala oft ekki góða ensku gæti það tekið þig aðeins lengri tíma að ferðast á milli staða - en á móti kemur að þú munt að eignast ógleymanlegar minningar.

Fá fría ráðgjöf

Hvað á ég að gera á Kalimantan?

Kalimantan svæðinu er skipt niður í fjögur héruð: mið, vestur, suður og austur Kalimantan.

Í mið Kalimantan eru fáir ferðamenn. Þar er að finna hina einstöku Dayak menningu og þó þeir séu ekki enn í klæðnaðinum þá er tónlistin og dansinn enn lifandi. Það er ótrúleg upplifun að ferðast um þetta svæði þegar það er hátíð í gangi - nýttu það ef þú getur!

Í vestur Kalimantan finnur þú stóra og fallega þjóðgarða og sögulegar Malay hallir eins og Sintang og Ketapang. 

Suður Kalimantan er minnsta héraðið og er höfuðborg þess Banjarmasin. Í þeirri skemmtilegu borg finnur þú frábæran fljótandi markað - klárlega sá besti í Asíu.

Vinsælast er að stoppa í austur Kalimantan. Þar finnur þú einstakar eyjar og ótrúlega þjóðgarða þar sem þú getur farið í göngu og skoðað dýralífið. Turtle Island er þekkt fyrir grænar skjaldbökur sem verpa eggjum á ströndum eyjarinnar. Ef þú ert þar á réttum árstíma getur þú séð nýfæddar skjaldbökur flýta sér í fyrsta skiptið út í sjó!

Á ferðalaginu þínu um Kalimantan verður þú að fara í ferð á Mahakam ánni - reyndu að finna ferskvatns höfrunga! Í norðvesturhluta Kalimantan, Pasir Panjang, nálægt Singawang finnur þú fræbærar strendur - einnig eru frábærar strendur á mörgum nálægum eyjum. 

Þú getur farið í gönguferðir í þjóðgörðunum Kayan Mentarang, Betung Kerihun og Bukit Baka Bukit Raya. Mundu að óska eftir leiðsögumanni á skrifstofu þjóðgarðsins.

Það er einstök upplifun að ganga um Kayan Mentrang og átt þú mjög ólíklega eftir að rekast á aðra ferðamenn! Vertu viðbúin/n að fá drullu á skónna svo vertu í góðum skóm!

Þú finnur marga einstaka köfunarstaði í austur, vestur og suður Kalimantan og þá sérstaklega við eyjarnar. Upplifðu einstaka köfun þar sem þú fylgist með litríkum kóralrifum, stórum Manta Rays og sæskjaldbökum. Passaðu þig þó á marglyttunum! 

Fá meiri upplýsingar

Þjóðgarðar á Borneo - Kalimantan

Þú finnur einstaka þjóðgarða á Kalimantan svæðinu. Auðveldast er fyrir þig að ferðast til þjóðgarða sem liggja við ströndina eins og Gunung Palung, Tanjung Puting og Kutai. Þjóðgarðarnir sem liggja inn í landi eru mun erfiðara að nálgast en þar getur þú upplifað magnað dýralíf. Athugaðu að í öllum þjóðgörðunum er næstum engin aðstaða fyrir ferðamenn svo þú verður að vera tilbúin/n að horfa á ævintýralegu hliðina á ferðalagi þínu. 

Fá meiri upplýsingar

Hvernig er best að ferðast um Kalimantan?

Hægt er að finna flug frá nokkrum stórborgum Asíu. Auðvelt er að ferðast til Kalimantan með ferju frá Malasíu og Indónesíu. Ef þú ert í malasíska hluta Borneo getur þú einnig farið yfir landamærin landleiðis á milli Sarawak og vestur Kalimantan. Mundu að þú þarft að vera komin/n með visa/vegabréfsáritun áður en þú kemur að landamærunum.

Fá meiri upplýsingar

Ferðaráð!

Gott er að kunna nokkra almenna frasa í tungumálinu. Heimamenn tala ekki mikla ensku og því mun það auðvelda þér mikið ferðalagið að kunna nokkra frasa eins og hvað kostar þetta?

Athugaðu að skógar hafa verið að hverfa hratt á síðustu árum vegna ólöglegs skógarhöggs. Vertu því ábyrgur ferðamaður og ekki styðja við það með því að versla trévörur.  

Hafðu samband við ferðasérfræðinga okkar og þeir hjálpa þér að finna ferðir og flug til Borneo. 

Fá meiri ferðaráð

Staðir til að sjá á Borneo

Turtle Island er algjört must þegar þú ferð til Borneo en þar séru grænar skjaldbökur sem verpa eggjum á ströndum eyjarinnar. Á Kalimantan finnur þú einnig fallega þjóðgarða og glæsilegar minjar sem gaman er að skoða.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Borneo

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.