{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
japan-sake-package-shibuya-cover
japan-women-traditional-kyoto-sidebar

Japan

Japan hefur upp á ótalmargt að bjóða. Hér er ekki einungis hægt að finna gífurlegan mannfjölda, stórborgir og fallegan menningarheim heldur einnig fjölbreytt landslag sem býður upp á fallegar strendur fyrir sunnan, að skíða í mögnuðu púðri fyrir norðan og heitar uppsprettur sem frábært er að dýfa sér í. Í Tókýó kemstu í snertingu við ótrúlega japanska hluti sem sjást hvergi annars staðar.

Fá fría ráðgjöf

Tókýó - Fremst japanskra borga

Búðu þig undir endalausan fólksflaum á neðanjarðarlestarstöðvum, götum og í verslunarmiðstöðvum ásamt því að sjá neonljós, auglýsingar og blikkandi skilti um alla Tókýó. 

Þú átt þó klárlega eftir að upplifa borgina sem afar áhugaverðan stað en undir niðri finnur þú hvern gimsteininn á fætur öðrum. Borgin er fjölbreytt og þar er að finna mörg áhugaverð hverfi sem sum hver minna á lítil þorp. 

Fá meiri upplýsingar

SUMO-glíman og hof

Ef þú hefur áhuga á að kíkja á hefðbundna SUMO-glímukeppni þá er gott að bóka fyrirfram.
Við mælum með að þú heimsækir einnig borgina Nikko sem er staðsett í nokkurra klukkustunda bílferð norður af Tókýó. Borgin er svokölluð höfuðborg hofa en þarna var einnig fyrsti keisari Japan, Toshugo grafinn. Þar finnur þú mörg falleg búdda- og shinto hof. Þessi borg er virkilega stórbrotin en það er að miklu leyti vegna staðsetningar hennar í miðjum sedrusviðarskógi. 

Heitar uppsprettur - Onsen

Það er næstum ómögulegt að ferðast til Japan án þess að skoða að minnsta kosti eina af mörgum heitum uppsprettum sem eru á víð og dreif um landið. Ekki missa af því! Þú getur til dæmis prufað þær sem eru staðsettar í Hakone - í um 100 kílómetra fjarlægð frá Tókýó. Frá Hakone getur þú einnig notið útsýnisins til fjallsins Fuji sem er 3.776 metra hátt og er hæsti tindur landsins.

Kyoto

Ferðalagið þitt til Japan ætti einnig að innihalda ferð til Kyoto sem var eitt sinn höfuðborg landsins. Kyoto er full af dásamlegum hofum sem eru umkringd fallegum görðum í hefðbundnum japönskum stíl. Þar áttu eftir að sjá mikið af gyðjum (geisha) og æfingagyðjum (maiko). 

Fá meiri upplýsingar

Himeji

Það tekur þig um þrjár klukkustundir að ferðast á milli Tókýó og Kyoto ef ferðast er með Shinkansen (e. bullettrains), sem eru hraðskreiðustu lestir í heimi, og gefur þér tækifæri til að stoppa og skoða Himeji. Þar er staðsettur einn af áhugaverðustu kastölunum í Japan en hann er líklegast hvað frægastur fyrir að hafa verið notaður í James Bond myndinni „You Only Live Twice‟. Byggingin er í mjög hefðbundnum japönskum stíl og það er auðvelt að sjá hvers vegna hann er á heimsminjaskrá UNESCO.  

Skíðaiðkun í Japan: Hokkaido and Sapporo

Ef þú ert mikið fyrir skíði og snjó ættirðu að fara á Hokkaido eyju, norður af Japan. Þar finnur þú magnaða skóga og virk eldfjöll en auk þess er landslag eyjarinnar að mestu leyti fullkomið fyrir skíði og aðra afþreyingu í snjónum. Frá nóvember til apríl fellur mikið af snjó á Hokkaido og fjölmörg tækifæri eru til þess að skemmta sér í snjónum. Til að nefna dæmi megum við til með að minnast á hina frábæru hátíð Sapporo Snow Festival í höfuðborg eyjarinnar. Finna má mörg góð hótel og skíðasvæði en þar á meðal eru Niseko, Furano og Rusutsu.

Suður-Japan: Okinawa

Í suðurhluta Japans liggur eyjaklasinn Okinawa þar sem hitastigið er hátt mestan hluta ársins. Á Okinawa (aðaleyjan) finnur þú einstaklega fallegar strendur og mögnuð kóralrif. Gættu þess að ferðalagið þitt til Japan komi þér einnig til Okinawa, því sá staður yfirsést oft en geymir nokkur af æðislegustu kóralrifum í heimi og strendur sem ekki er hægt að líta framhjá.

Hafðu samband við ferðasérfræðinga okkar og þeir hjálpa þér að finna ferðir og flug til Japan.

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Japan

Það er alveg ómissandi að kíkja í heimsókn til Tókýó þegar þú heldur til Japans. Það er síðan stutt að fara þaðan yfir til Kyoto sem var eitt sinn höfuðborg Japans.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Japans

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð
alt

Sérðu sjálfa/n þig fyrir þér læra í Japan?

Við erum í samstarfi við háskóla í Japan og getum því leiðbeint þér betur um að hverju þú þarft að huga sértu að íhuga að stunda nám hér.

Sjá þá háskóla sem við erum í samstarfi við

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.