Malasía

Sólin að koma upp í Malasíu
 

Ferðir til Malasíu- falleg og framandi

Malasía mun koma þér skemmtilega á óvart. Nútímaleg höfuðborg, dásamlegar strendur, afskekkt þorp, fjölbreytt dýralíf og vingjarnlegt fólk. Það eru margar góðar ástæður fyrir því að ferðast til Malasíu - að sjálfsögðu með KILROY travels.

Malasía er eitt af þeim löndum í Asíu sem minnir okkur hvað mest á hinn vestræna heim, bæði hvað varðar tungumál og lífsstíl. Flestir heimamenn tala ensku frekar vel, sérstaklega ef miðað er við nærliggjandi lönd. Ástæðan er líklega sú að Malasía var bresk nýlenda allt til ársins 1957. Þrátt fyrir miklar mætur á vestrænum lífsmáta þá hefur landið einnig sína sérstöðu. Það er algert skilyrði að smakka á matseld heimamanna, og þá sérstaklega hinum frábæra Malay Chicken Satay - sterkur kjúklingur þræddur uppá steikartein framreiddur með sætri hnetusósu. 

Kúala Lúmpúr

Kúala Lúmpúr er höfuðborg Malasíu og er nútímaleg og annasöm heimsborg sem hýsir um 7 milljónir íbúa. Í Malasíu er meirihluti íbúa malajískir öfugt við Kúala Lúmpúr þar sem meirihlutinn eru kínverjar. Borgin er afar vinsæl ferðamannastaður þar sem hún býr uppá fjölmarga afþreyingarmöguleika, spennandi menningu og afbragðsgóðar skoðunarferðir. Þú finnur hér glásu af hofum, heillandi markaði,  sögulegar byggingar og söfn. Auk þess býður borgin uppá ódýran lúxus. Hér eru til dæmis ódýrustu fimm stjörnu hótel heims! Á svæðinu sem kallað er hinn Gyllti Þríhyrningur finnurðu flest þessara hótela og standa þau í röðum innan um flottustu næturklúbbana, verslunarmiðstöðvarnar og hin heimsfrægu háhýsi Petrona Twin Towers.

Perhentian-eyjar

Perhentian eyjarnar eru tvær eyjar sem geyma kríthvítar strendur og kristalstært vatn. Hér eru einnig glæsileg kóralrif sem skemmtilegt er að kafa um og svo er nátturulega frábær upplifun að,gista í hinum frægu bungalows.  Ef þú vilt slappa af í fallegu umhverfi með möguleika á að upplifa ævintýri þá skaltu pakka bikiníinu niður og skella þér og skoða þessar einstöku eyjar. Auk vatnasports geturðu farið í spennandi gönguferðir um gróskumikla frumskóga, þar sem dýra- og plöntulífið er einstaklega litríkt. Þú getur tekið rútu frá KL til Kuala Besut og þaðað ferðast með hraðbát til eyjanna. Ferðin tekur sirka halftíma.  Bæði Perhentian eyjarnar og Borneo bjóða uppá guðdómlegar baðstrendur.

Ekki gleyma að leggja leið þína framhjá malajíska hluta Borneo þar sem þú finnur frábærar strendur og hinn fræga órangutan. Frumskóginn og eldfjöllin á Borneo ættirðu einnig að skoða, ekki minnst svæðið við Kota Kinabalu.   

Penang

Penang býður uppá grjóskumikla frumskóga, notalegar bújarðir og litil fiskiþorp. Georgetown er miðja Penang þar sem flestir ferðamenn koma. Vertu viðbúin/n hjörð Englendinga með föla leggi, klædda tennissokkum í sandölunum! Ekki missa af kláfnum sem fer alla leið uppá Penang hæð, héðan geturðu séð yfir alla eyjuna! Á toppi fjallsins geturðu fengið þér hádegisverð á flottum veitingastað og farið í ferð til Kek Lok si, stærsta Búdda hofs landsins - sem er algerlega þess virði að heimsækja! Frá hofinu er frábært útskýni yfir Georgetown og í hofinu geturðu fundið lítið stöðuvatn með gæfum skjaldbökum sem hægt er að handmata.    

Að ferðast um Malasíu 

Samgöngur eru góðar í Malasíu. Flestar rútur í KL eru í góðu ásigkomulagi og bjóða uppá loftkælingu. Í minni borgum eru rútur einnig góðar en flestar bjóða ekki uppá loftkælingu. Flestir leigubílar í stærri borgunum notast við gjaldmæli en ef þú ert í minni borgunum skaltu semju um verð áður en þú sest uppí bíl. Lestir eru góðar og skilvirkar svo það er auðvelt að ferðast til allra landshorna í Malasíu, einnig til Taílands í norðri eða Singapore í suðri. 

Loftslag í Malasíu

Malasíu býður uppá afskaplega gott veðurfar sem breytist ekki mikið yfir árið. Hitastig er á milli 20 og 30 gráður. Ef þú ert mikill strandarunnandi ættirðu að forðast að leggja leið þína til austurstrandar Malasíu á tímabilinu nóvember til janúar og vesturstrandarinnar á tímabilinu september til janúar því þá stendur rigningartíminn yfir.   Ekki fátíð sjón: gróðursælir hrísgrjónaakrar. Hér Cameron Highlands.

Verð og verslanir

Að ferðast um Malasíu er tiltölulega ódýrt.  Þú getur gert ráð fyrir að eyða sirka 4.000 krónum á dag ef þú ætlar að gista á ódýrum hótelum, ferðast ódýrt og forðast dýr veitingahús. Ef þú vilt aðeins meiri þægindi geturðu búist við að þurfa að borga helmingi meira. 

Það er ódýrt að versla í Malasíu. Í verslunarmiðstöðunum er ekki erfitt að finna ódýrar merkjavörur og rafmagnstæki. Hagstæðustu kaupin eru þó á litríku mörkuðunum. Hér er einnig skemmtilegt að rölta á milli bása og upplifa stemmninguna.

Blogg frá Malasíu

Ef þú hefur áhuga á að lesa reynslusögur annarra sem ferðast hafa til Malasíu þá geturðu heimsótt síðuna blogs.kilroy.is. Þú getur einnig búið til ókeypis ferðablogg. Þar geturðu sett inn myndir og vídeó úr ferðinni og tengst Facebook í gegnum bloggið.

Ummæli
blog comments powered by Disqus
Contact Contact