Borgir og bæir milli Noosa Heads í norðri og Tweed Heads í suðri eru næstum samgrónir, en þetta hefur gefið Brisbane annað gælunafn – 200 kílómetra borgin. Fyrir ferðamenn þýðir þetta að það er auðvelt að komast á milli staða þannig að búðu þig undir að kíkja til áfangastaða eins og Gold Coast eða Surfers Paradise á meðan þú ert þar.
Hvað er hægt að gera í Brisbane?
Þegar þú ert kominn til Brisbane er gott að skoða ítarlega hvað er hægt að sjá og gera. Þú ættir að skipuleggja þig vel út frá því hvað þú verður lengi á staðnum.
Hin vinsæla strönd South Banks er í borginni og er góður staður til að byrja á. South Banks er eina manngerða ströndin í Ástralíu en þar getur þú upplifað þetta kósý andrúmsloft sem einkennir Brisbane og fengið þér að borða á fjölmörgu veitinga- og kaffihúsum sem þar er að finna, jafnvel fengið þér göngutúr við höfnina. Á hverju ári eru vinsælar hátíðir og viðburðir þannig að skoðaðu hvað er í gangi áður en þú ferð.
Til að fá besta útsýnið yfir þessa fallegu borg, farðu til Coot-tha fjallsins, útlínur borgarinnar eru hreint út sagt frábært myndefni!
Litríkt dýralíf Ástralíu
Enginn ferðast alla leiðina til Ástralíu án þess að hlakka til að sjá öll áströlsku dýrin sem við höfum heyrt svo mikið um! Í Lone Pine Koala Sanctuary er hægt að fá að halda á kóalabirni, gefa kengúru að borða og læra um hættulegar tegundir skriðdýra, án þess að þurfa að yfirgefa borgina. Ef þú hefur góðann tíma, þá er hinn frægi Steve Irwin dýragarður staðsettur í nokkurra klukkustunda fjarlægð frá borginni. Þar er hægt að fá frábært innsýn í ástralskt dýralíf og sjá vinsælar dýrasýningar.
Lífið í Brisbane
Góður staður til að fara út á lífið og hitta íbúa borgarinnar er Brunswick St. Mall í hjarta Fortitude Valley, en þar er mikið af tónleikastöðum með lifandi tónlist, kaffihúsum og veitingastöðum. Annar staður er úthverfi West End þar sem andrúmsloftið er mjög skemmtilegt.
Ferðalag til Stradbroke eyjar (sem auðvitað er kölluð „Straddie“ af innfæddum) tekur um klukkustund frá Brisbane. Þar rennur hvítur, glansandi sandurinn út í blátt flauelsmjúkt vatnið! Njóttu grófleikans í landslaginu við hafið, rólegra vatnasvæða og óspilltra stranda, ásamt útsýninu yfir Moreton Bay.