Bólivía
Í Bólivíu eru miklar andstæður. Ef þú ferðast til Bólivíu muntu kynnast öllum loftslagsbeltum, frá heitum og rakamiklum stöðum til kulda Andesfjallanna. Blómstrandi menning, fallegar gönguslóðir og mikil náttúrufegurð; allt kallar þetta á að landið sé kannað. Farðu í bakpokaferðalag með KILROY travels.
Þótt Bólivía sé eitt af fátækustu löndum í Suður-Ameríku þá er það ríkt af litríkri menningu og stórbrotnu landslagi. Gamlir siðir eru víða sjáanlegir þar sem innfæddir hafa haldið þeim vel við. Andstæðurnar í landslaginu eru gífurlegar, og það gæti reynst viðfangsefni að pakka í tösku fyrir ferð til Bólivíu. Þó er hægt að komast ágætlega út úr þessu ef þú ert ekki í þeim pælingum að klífa Andesfjöllin og velur rétta árstímann. La Paz
Höfuðborgin La Paz heillar með öllum sínum litlu vegum og litríkt klæddum Bólivíubúum sem selja handunnar vörur, margvísleg sjöl, hatta og alpaca hanska. La Paz er hæsta höfuðborg heims. Andrúmsloftið er svo sannarlega kraftmikið. Borgin Sucre svo annar fallegur staður með mikla sögu og mörg áhugaverð söfn.
Farðu í flúðasiglingu í Yungas á. Skoðaðu dýralífið í Pantanal og skelltu þér í göngu um Cordilleras. Fyrir fjallaklifur er best að fara yfir vetrartímann þegar rignir minna. Göngugarpar hafa úr mörgum fallegum gönguslóðum að velja.
Það gæti verið ódýrara að fljúga til annarra Suður-Amerískra stórborga og ferðast yfir land til Bólivíu. Leiðirnar frá Argentínu og Perú eru bestar. Kort af "hoja de ruta" er nauðsynlegt og fæst á öllum þjónustustöðum við landamærin (Servicio Nacional de Tránsito). Næturrúturnar eru þægilegasti ferðamátinn en ef þú vilt meiri upplifun er skemmtilegt að ferðast um í ódýrum jeppum. Lestir eru ekki góðar og mjög hægvirkar. Besti ferðatíminn er frá maí til október. Veðurfar er þurrara og þú færð fleiri bjarta daga.
Fylgstu með veðurspánni og fréttum reglulega þegar þú ferðast um Bólivíu. Bólivía hefur gengið í gegnum miklar rigningar og flóð svo það er vissara að vera vel undirbúinn. Mótmæli og verkföll eru algeng og geta stundum farið úr böndunum. Farðu því varlega og varastu að lenda í þeim miðjum.
Contact