Suður-Afríka
Suður-Afríka býr yfir ótrúlegu dýralífi og náttúru og er hinn fullkomni staður til útivistar og ævintýraferða. Ertu þyrst(ur) í safaríferðir, surfing, köfun, lengri gönguferðir og fjölskrúðugt dýralíf? Þá er Suður-Afríka málið. Kauptu ferðina hjá KILROY!
Það er úr mörgu að velja þegar hugsað er til áhugaverðustu svæðanna í Suður-Afríku. Brot af því besta er t.d. Simonstown við Boulder Beach stönd þar sem þú getur séð fjölda Afríkumörgæsa (einnig kallaðar Jackass-mörgæsir vegna asnahrínsins sem þær gefa frá sér) og Cango hellarnir við Knysna og Oudtshoorn. Ef þú vilt komast á sögu- og menningarslóðir skaltu fara til Port Elisabeth og leita eftir dagsferðum til svokallaðra "townships", sem eru þekkt fátækrahverfi. Við mælum einnig með að þú farir í þjóðgarðinn Kruger og skellir þér í safaríferð. Í slíkum ferðum kemstu í náið tæri við ljón og fleiri spennandi dýr og ef þú gistir í tjaldi muntu sofna út frá framandi dýrahljóðunum.
Allir sem heimsækja Höfðaborg verða að fara uppá topp stapafjallsins Table Mountain. Þaðan er stórkostlegt útsýni og borgin er rómuð fyrir fegurð - þetta því einstök upplifun. Robben Island er gimsteinn fyrir þá sem hafa áhuga á sögu Suður-Afríku. Cape Point höfði er staðurinn þar sem Indlandshaf og Atlantshaf mætast en frá vitanum, sem er hátt uppi, er magnað útsýni langt á haf út.
Í héraðinu Kwazulu-Natal við suðurströnd Suður-Afríku liggur ferðamannaborgin Durban. Ef þú vilt forðast aðra ferðamenn skaltu halda lengra suður. Það er þó gaman að koma til Durban því borgin er þekkt fyrir frábæra indverska matargerð. Vesturströndin er þekkt fyrir góðar gönguleiðir en annars eru flott göngusvæði í norðri, sérstaklega ef þú ferðast frá Cintsa till Xhosa-þorpanna.
Í Suður-Afríku er að finna nokkra af bestu brimbrettastöðum jarðar. Byrjendur geta t.d. fengið sér einkakennslu í litlu borginni Plettenberg Bay þar sem hægt er að fara í skemmtilegar dagsferðir út á Robberg skaga. Þar heyrirðu öskur sæljónanna og getur notið tilkomumikils útsýnis. Á svæðinu eru skemmtilegar gönguleiðir sem eru vel merktar og auðveldar yfirferðar. Það er best að fara í gönguferð um svæðið á meðan á lágfjöru stendur því hluti af stígnum fer undir sjó þegar flæðir að.
Á Garden Route vegi getur þú fundið ánna Bloukrans River. Hér áttu möguleika á einu mesta ævintýri sem völ er á: Hæsta teygjustökk í heimi. Fallið frá brúnni og niður er 216 metrar - við ábyrgjumst algjört adrenalínkikk og upplifun sem þú munt aldrei gleyma!
Drakensberg fjöll liggja á milli Durban og Jóhannesarborgar. Svæðið býður uppá margar skemmtilegar gönguslóðir, klifursvæði og hestaferðir í fersku fjallaloftinu en þarna er einnig hæsti foss Afríku (sem er jafnframt næsthæsti foss heims) Thukela foss sem er með 947 metra fallhæð. Farfuglaheimilið Amphitheatre skipuleggur ferðir til Lesotho sem er umkringt fjöllum, en í Lesotho er sveitastemningin ríkjandi og út um allt eru gömul málverk af klettum og hömrum. Ef þú hefur áhuga geturðu heimsótt galdralækninn á svæðinu til að fá öðruvísi læknisráð. Vegir eru mjög slæmir hér svo þú skalt hugsa þig tvisvar um áður en þú leigir bíl - farðu frekar í dagsferðir á hæfari ökutækjum.
Fyrir kafara er um margt að velja í Suður-Afríku. Þú getur t.d. prófað búrköfun þar sem þú ert í búri innan um hvíthákarla og fleiri hættulegustu sjávardýr jarðar. Dyer Island er góður staður til að iðka þessa íþrótt. Sodwana Bay er þó mekka köfunar í Suður-Afríku og liggur í u.þ.b. 4 klukkutíma fjarlægð frá Durban. Þar geturðu séð hitabeltisfiska, skjaldbökur, hákarla og höfrunga, allt eftir árstíma.
Suður-Afríka er þekkt fyrir frábær vín og það skemmtilega við vínsmökkun í Suður-Afríku er hvað hún býðst á viðráðanlegu verði - jafnvel fyrir bakpokaferðalanga. Það er auðvitað dásamlegt að gæða sér á góðu víni á meðan þú heimsækir hina fögru víngarða Suður-Afríku. Skoðaðu t.d. Groot Contantia sem er elsti víngarður landsins, Paarl eða Franchhoek Stellenbosh.
N2, einnig kallaður Garden Route, er mikilvæg samgönguleið fyrir ferðamenn. Vegurinn liggur meðfram Mossel Bay og Storm River við suðurströndina. Það eru engar almenningssamgöngur svo þú skalt taka leigubíl eða ferðast fótgangandi að degi til. Forðastu að labba ein(n), sérstaklega eftir myrkur. Það ganga skipulagðar, öruggar rútuferðir á milli helstu borga og bæja sm upplagt er að nýta sér. Þú getur einnig farið með Baz Bus, ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í að þjónusta bakpokaferðamenn. Fyrirtækið býður uppá hop-on hop-off þjónustu og fer á milli u.þ.b. 180 farfuglaheimila í Suður-Afríku. Ef þú hefur áhuga á að heyra meira um þessa þjónustu skaltu hafa samband við okkur hjá KILROY! Ferðalag til Suður-Afríku er einnig frábært tækifæri til að láta road trip drauma þína rætast því að ferðast um í bíl er frábær leið til þess að upplifa og sjá Suður-Afríku.
...hinum fallega Garden Route og geggjaða safaríinu í Kruger þjóðgarði. Einnig skaltu leggja leið þína til Tsitsikamma Coastal National Park þar sem hin fræga gönguleið Otter Trail er. Auk þess máttu ekki missa af mikilfenglegu útsýninu frá toppi Table Mountain í Höfðaborg.
Ekki gleyma að smakka kjötréttinn "bobotie" og fá þér strúta-hamborgara! Svo máttu ekki láta "Biltong" fram hjá þér fara en það er ekta Suður-Afrískt og mjög bragðgótt kjöt. Ef þú hefur ekki áhuga á að borða strút, hvernig lýst þér þá að skella þér á strúta kapphlaup í bænum Oudtshoorn? Við getum með fullri vissu sagt að það er einstök upplifun.
Ef þú vilt upplifa einstaka menningar- og músíkupplifun mælum við með að fara á Cape Town International Jazz Festivel. Síðan er um að gera að skoða möguleikann á að vinna sem sjálboðaliði í Suður-Afríku, en það er frábær leið til þess að láta eitthvað gott af sér leiða og gera ferðina enn ógleymanlegri í leiðinni.
Contact