Kambódía
Kambódía er friðsæll og einstakur áfangastaður. Landið býr yfir myrkri sögu en það mætti segja að landar þess hafa upplifað að fara til helvítis og til baka á 30 árum. Hlutirnir hafa fara batnandi og í dag er erfitt að greina að fyrir aðeins nokkrum áratugum átti sér stað þessi hörmung. Kambódía er ríkt af menningu og minjum, löngum sandströndum, náttúrufegurð og hinu óviðjafnanlega Angkor Wat.
Í höfuðborg Kambódíu, Phnom Penh, býr yfir ein milljón manns. Uppbygging er hröð en það er enn hægt að sjá votta fyrir ofsafenginni sögu landsins. Choeung Ek drápsvellirnir eru nokkrir af þeim minnisvörðum sem sýna stríðssögu Kambódíu. Staðirnir eru minnisvarðar um þjóðarmorðin á áttunda áratugnum sem voru framkvæmd af Rauðu Khemerunum. Einnig er þess virði að heimsækja hofin Ounalom, Wat Phnom og Wat Moha Montrei. Skoðið einnig Silver Padoga sem er annað hástemmt tákn um Khmerera, og er byggt úr silfri, demöntum og kristal. Hjá ánni Mekong er hægt að finna hugguleg kaffihús í Parísarstíl. Þú getur svo farið frá Tom Le Sap Lake til Siam Reap. Það tekur aðeins nokkra klukkustundir með báti. Angor Wat
Það er algjörg möst að skoða Angkor Wat hofin þegar þú ferðast um Kambódíu. Þau eru staðsett nálægt Siam Reap þar sem einnig er mælt með að staldra við. Þú getur fundið fyrir nálægð liðins tíma þegar gengið er um hofin. Hofin voru byggð á 12 öld og voru upphaflega ætluð sem höfuðborg landsins.
Ef þú elskar strendur farðu þá til Sihanoukville. Þú kemst þangað með rútu frá Phnom Penh. Flottustu strendurnar er aðeins fyrir utan borgina. Leigðu vespu og stefndu á eyjarnar. Ef þú vilt fara á afskekktan stað farðu til fögru Bamboo eyjunnar. Það tekur um það bil 1 klukkustund á fiskibáti. Það eru sirka 15 litlir bústaðir á eyjunni í látlausri útfærslu: veggir, mosquito net og hengirúm á lítilli verönd við sjóinn. Það eru engir bílar, rafmagn, búðir eða barir á eyjunni en þú munt vera laus við farandsalana. Það er einn bústaður á eyjunni sem selur vörur, s.s. mat og bjór. Sérstakur bónus er geggjað sólarlag og sindrandi stjörnubjartur himinn.
Þú getur einnig komist til Sihanoukville frá Taílandi, frá eyjunni Koh Chang.
Alþjóðaflugvöllur er nálægt Phnom Penh. Ef þú hefur knappan tíma þá getur þú flogið til Siem Reap til að skoða hofin. Að öðrum kosti getur þú notast við rúturnar en það getur verið tímafrekt sökum slæmra vega. Þú getur einnig nálgast Sihanoukville eða Sisophon með lest frá höfuðborginni. Rútur, mótorhjól eða riksa eru vinsælustu innanbæjar farartækin. Það er auðvelt að nálgast Phnom Penh frá borginni Ho Chi Minh eða Bangkok, en gerðu þá ráð fyrir fleiri ferðadögum.
Contact